Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, ágúst 18, 2003


Skólahugleiðingar

Skólinn er að fara að byrja. Þá er að mörgu að huga. Ég þarf víst að taka sumarpróf af því að í desember fannst mér ákaflega skynsamleg hugmynd að læra ekki fyrir eitt prófið. Það kemur í hausinn á mér núna en því miður virðist ég ætla að fara alveg sömu leið og áður, opna ekki bók og stefni því beint til helvítis.

Annars virðist nám mitt ætla að taka smá u-beygju núna. Öll skylda búin í stjórnmálafræðinni (fyrir utan sumarprófið) og þá fær mín allt í einu þá flugu í höfuðið að það sé mjög skynsamleg hugmynd að gera eitthvað allt annað við þessar örfáu einingar sem eru eftir. Ég er komin með nokkrar hugmyndir að því hvað væri sniðugt að gera og langar soldið að fá smá fídbakk frá lesendum um hvaða klikkaða hugmynd er best/klikkuðust. Hvet þess vegna alla til að kjósa um framtíð mína í nýju könnuninni!

Þar sem ég er algjörlega háð því að hafa tölvu í skólanum þarf ég að fara að huga að tölvumálum. Tölvan mín er orðin eitthvað lasburða greyið, enda ekki skrýtið þegar um forngrip er að ræða. Fjögurra ára gömul fartölva á nottla bara heima á Árbæjarsafninu. Ég er búin að skoða skólatilboðin sem streyma inn um bréfalúguna á hverjum degi. Svakaleg gylliboð en allt kostar þetta pening. Meira að segja nokkra peninga. Eila bara alveg soldið marga. Ég er samt búin að sjá hvernig ég ætti að geta debet- og kredit-fært bödjettið til að hafa efni á tölvu... eða hálfri tölvu alla vega. Ég sleppi því bara að kaupa skólabækur. Ég er búin að læra af reynslunni. Maður á aldrei að kaupa skólabækur ef maður veit að maður á ekki eftir að lesa þær. Ég er ekki mikið fyrir að lesa þær þannig að ég held ég segi bara pass við Bóksöluna í ár og beini viðskiptum mínum eitthvert annað. Einhverju verður maður að punga út til að missa ekki kúlið!

Kosturinn við það að byrja í skólanum er félagslífið og að hætta í vinnunni. Gallinn við það er að tíminn líður miklu hraðar og tekjurnar dragast saman meira en góðu hófi gegnir. En maður verður víst að leggja þetta á sig. Ég verð alla vega fegin því að hætta í vinnunni, enda búin að vinna allt of mikið í sumar.

Sunna 10:18


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli