|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
laugardagur, ágúst 30, 2003 |
|
|
|
Sörpræs!!!
Í gær fórum við Óli út að borða. Við dressuðum okkur voða fínt upp, fórum út í bíl og lögðum af stað. Stefnan var sett á Ítalíu. Ég var búin að renna yfir matseðilinn á netinu og hafði ágætis hugmynd um hvað ég ætti að fá mér.
Þar sem við vorum frekar tímanlega fórum við í smá bíltúr. Svo ákvað Óli að leggja fyrir aftan Landsbankann. Sunna var nottla alveg græn. Ég hélt að við ætluðum bara að rölta í rólegheitunum niður á Ítalíu. Þegar ég kom út úr bílnum blasti Argentína steikhús við mér. Ég sagði því í gríni "Nei sko! Ætlum við á Argentínu?" Svarið sem ég fékk var "Já!" Þarna lá við að hjartað missti úr 5 slög af undrun. Ég trúði honum ekki alveg þegar hann sagði já en svo hélt hann áfram í áttina að Argentínu og þegar við komum inn fékk ég það staðfest að hann hafði í alvörunni pantað borð þar.
Maturinn sem við fengum var himneskur. Nautakjöt er alltaf æðislegur matur en þetta var bara ekki líkt neinu nautakjöti sem ég hef smakkað. Sneiðarnar voru trilljón sinnum þykkari en kjötafgreiðslumennirnir skera fyrir mann úti í búð, miklu safaríkari og mýkri. Ég fékk 300 gr. nautalund, hún átti að vera medium-rare en var eiginlega bara alveg rare. Hún var ekkert verri fyrir það. Ég get alveg borðað vel blóðuga steik. Þetta er tvímælalaust langbesta nautasteik sem ég hef fengið. Mmmm... Með þessu var bökuð kartafla með góðri sósu, steikt grænmeti og æðisleg hvítlaukssósa. Í eftirmat fengum við svo æðislega súkkulaðiköku með blautum kjarna og ís. Mmmm... alveg fæþaðástaðnumgott!
Eftir matinn fórum við í smá labbitúr í bænum, fórum svo heim og horfðum á A Beautiful Mind á dvd. Ég steinsofnaði reyndar eftir nokkrar mínútur eftir frábært kvöld.
Í dag fæ ég hins vegar að upplifa helvíti á jörð. 13 tíma vakt. OJJJ!!! Ég missi af leiknum Leiknir - Númi. Áfram Leiknir! (Vá, ég er sko alveg orðin heilaþvegin!) Jæja, bara rúmir 9 tímar eftir...
Sunna 12:51
|
|
|
|
|
|
|