|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
laugardagur, ágúst 23, 2003 |
|
|
|
Stór helgi framundan
Nú er allt að gerast. Í dag verður farið á Þingvelli með kennurum Verslunarskólans. Það verður eflaust einkennilegt en vonandi gaman. Vélritunardeild verður þar í öllu sínu veldi og þá er nú hægt að bóka stuð. Ég hef samt aldrei verið nálægt vélritunardeild þegar yfirvaldið er á staðnum þannig að það getur svo sem vel verið að það dragi eitthvað úr geðveikinni. Ég hef ákveðið að segja öllum sem spyrja mig að ég sé 18 ára nemandi Verslunarskólans. Það gæti vakið fróðleg viðbrögð!
Smá bjórhittingur var í bryggjuhöll hins geðveika vélritunarkennara var í gær. Þar ræddu hugsjónamennirnir tveir, hinn geðveiki og hinn þunglyndi vélritunarkennari, um hvernig væri best að halda uppi aga í þriðja bekk. Það sem kom mér á óvart var af hve mikilli alvöru þeir taka starf sitt. Það er sko alveg á hreinu að þeim er treystandi til að kenna 16-17 ára börnum landsins! Anton lagði svo mikinn metnað í fyrsta kennsludaginn að hann er þegar kominn á undan áætlun með einn bekkinn! Geri aðrir betur.
Á morgun verður svo stórviðburður sumarsins! Þá tekur KR á móti Fylki í Frostaskjólinu. Þetta er úrslitaleikur sumarsins. Liðið sem tapar missir sjálfstraustið og missir af titlinum. Útlitið var svart hjá okkur KR-ingum þegar við náðum bara jafntefli við Val um daginn en Fylkismennirnir virðast hafa klikkað fyrr í sumar en venjulega (endast venjulega bara út 15. umferðir) þegar þeir skíttöpuðu fyrir Þrótturum í 14. umferð - á heimavelli í ofanálag! Spennan magnast!
Sunna 11:28
|
|
|
|
|
|
|