|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, ágúst 25, 2003 |
|
|
|
Svakaleg helgi
Í morgun vaknaði ég í ótrúlega góðu skapi. Mig dreymdi KR og fótbolta í alla nótt og vaknaði syngjandi "Við erum svartir, við erum hvítir... la la la...". Já, KR-ingar sýndu meistaratakta í Frostaskjólinu í gær. Fylkismenn sýndu 15. umferðar-takta. Það var gaman.
Ég bauð Óla á leikinn gegn því að hann öskraði Áfram KR af fullri innlifun. Það gekk mun betur en ég átti von á. Hann er augljóslega skápa-KR-ingur sem á eftir að átta sig á því sjálfur. Hann öskraði af öllum lífs og sálarkröftum og það er alveg nokkuð ljóst að það verður auðvelt að ala hann upp í góðum KR-siðum.
Titillinn er þó ekki í höfn þótt vel hafi gengið í gær. Nú er um að gera að halda áfram á þessari braut og halda dollunni í siðmenningunni. Skelfing yrði nú sorglegt að horfa á eftir henni út á landsbyggðina.
Laugardagskvöldið var nokkuð furðulegt. Þá var haldið á Þingvelli með kennaraliði Verslunarskólans. Þar brá mér nokkuð í brún að hitta gamla kennara. Ingveldur, sem kenndi mér leikfimi í Hagaskóla var þarna, Einar, skólastjórinn í Hagaskóla, sömuleiðis ásamt Steinunni, konu sinni og bókasafnsverði í Versló. Ég man eftir henni frá því ég var pínulítil að þvælast með mömmu í Hagaskóla. Þarna var líka Hr. Plagíóklas og Knútur, íslenskukennarinn minn úr MR.
Fyrst var okkur boðið upp á fordrykk í anddyri Valhallar. Við drukkum örlítið af hvítvíni, jafnvel pínulítið meira en örlítið. Því næst tók við æðislegt hlaðborð með lambasteik og nautasteik í aðalrétt. Við ákváðum að halda okkur við hvítvínið og stútuðum tveimur flöskum fjögur saman.
Eftir matinn var hópsöngur og skemmtiatriði og svo tvístraðist hópurinn nokkuð. Við fórum á barinn og fengum okkur leynidrykk vélritunardeildar, gin. Strákarnir fengu strákaútgáfuna, gin í tónik, ég fékk stelpuútgáfuna, gin í greip. Óli sendi mig á barinn en þegar ekkert bólaði á mér til baka fór hann að leita að mér. Hann gerði ekki ráð fyrir að ég myndi blanda geði við aðra kennara á svæðinu (eða blanda gini við aðra kennara) en þegar hann fann mig á barnum vorum við Knútur í hrókasamræðum að plotta heimsyfirráð og læti. Já, skemmtilegur kennari hann Knútur.
Í rútunni á heimleiðinni var vélritunarsöngurinn sunginn. Fyrir þá sem ekki kunna hann er hér örlítið textabrot:
Ég má ekki horf'á puttann minn
og það má ekki borða matinn sinn
ekki far'á irkið og leikja sér í leikjum
ekki gera hitt og ekki þetta
Þessi kennari er algjört æði
hann er alltaf að skamma mann
þó maður geri ekki neitt
hann er alltaf að skamma mann
Eftir ítrekaðar tilraunir til að fá einhvern sniðugan verslókennara til að halda eftirpartý ákváðum við að stökkva upp í leigubíl með matráðskonu skólans. Um klukkan sex vöknuðum við og fórum á fætur til að dæla í okkur verkjalyfjum. C-vítamín, fjölvítamín, íbúfen, parkódín og kók varð fyrir valinu, auk þess sem Óli fékk sér lýsisperlu líka. Oj! En þetta virkaði. Þegar þynnkumatur fékkst skömmu fyrir hádegið var ég í góðum gír þótt aðrir hafi kannski verið ífið þynnri.
En sumsé, helgin var góð! Áfram KR!!!
Sunna 15:05
|
|
|
|
|
|
|