|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, september 08, 2003 |
|
|
|
Eitthvað örlítið tvístígandi...
Ég er búin að vera eitthvað örlítið tvístígandi undanfarið. Eitthvað virðist ganga illa upp að möndla vinnu/skóla-skipulag þannig að allir verði sáttir. Til að bæta gráu ofan á svart ákváðu kennarar í spænskunni að hætta/ekki koma til landsins/vera óskipulagðir eða eitthvað svoleiðis. Þess vegna fékk ég nýja stundatöflu um helgina. Í raun var hún alveg eins nema bara einn kúrsinn hafði skipt um nafn! Svo var búið að færa kennarana til þannig að þeir kenna ekki sömu kúrsana. Ég hef ekki alveg orku til að höndla þetta núna. En það er samt gott að vera komin í spænskuna. Ég finn það að ég er strax orðin fljótari að hugsa á spænsku þegar ég heyri hana talaða svona oft. Og þá er ég að meina kastellísku með katalónskum hreim. Oh home sweet home! Ekkert suður-amerískt röfl!
Símon stóð sig eins og hetja í skírninni í gær. Hann var skírður Símon (eins og ég átti nú svo sem von á, enda hefur hann heitið Símon í eitt og hálft ár) og var tvímælalaust fallegasti strákurinn í kirkjunni (sorrý Óli). Hann mætti í dökkbláum jakkafötum með gylltum hnöppum, hvítri smoking-skyrtu og með rauða slaufu um hálsinn. Krullurnar voru vatnsgreiddar til hliðar. Algjört krútt. Já, ekki amalegt að vera eins og hálfs árs.
Félagsvísindadeild/Óli stóð sig vel í Kollgátunni í dag. Óli vann lyfjafræði/raunvísindadeild mjög sannfærandi. Gaman að sjá hann gera það. Hinir tveir í liðinu voru að mestu uppfyllingarefni. Félagsvísindadeild er sem sagt komin í aðra umferð. Það er vel. Svolítið fyndið að sjá drenginn keppa fyrir deildina þar sem hann hefur eytt löngum stundum í að röfla um hversu ómerkileg deildin er. Svo svíkur hann lit eins og ekkert sé, yfirgefur heimspekideildina og keppir fyrir okkur. Það er bara ávísun á eitt! Hann á að sjálfsögðu eftir að verða KR-ingur! Hann hefur nú eytt miklum tíma í að bölva liðinu mínu í sand og ösku en um leið og honum er boðið á leik gegn stuðningi er hann boðinn og búinn. Ekki slæmt!
Sunna 20:29
|
|
|
|
|
|
|