|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, september 25, 2003 |
|
|
|
Fall er fararheill
Ég ætla svo sannarlega að vona að þessi málsháttur hafi lög að mæla. Dagurinn er búinn að vera total disaster og klukkan er ekki einu sinni orðin 12!!!
Í krónólógískri röð eru óhöpp dagsins þessi:- Ég kom út í morgun og sá, mér til mikils ama, að ég þurfti að skafa af bílnum. Þar sem ég var í seinni kantinum, átti eftir að keyra úr sveitinni alla leið vestur í bæ (jebbs, var í Breiðholtinu í nótt) sá ég fram á að vera alveg í það tæpasta að mæta á réttum tíma í skólann. Ég þoli ekki að koma of seint!
- Þegar ég fann loksins bílastæði við HÍ tók næsta tragedía við. Af einhverri ástæðu verður maður að nota fjarstýringuna til að opna og læsa bílnum. Ef maður gleymir þessu fríkar bíllinn út og lætur öllum illum látum. Nú, það væri svo sem engum vandkvæðum bundið undir venjulegum kringumstæðum. En í fyrradag ákvað lyklakippan að gefa sig. Fjarstýringin brotnaði af þannig að ég varð að passa upp á tvo hluti í staðinn fyrir einn. Ég er alveg skelfileg með bíllykla. Setningin hún finnur hvergi bíllyklana á allt of oft við um mig. En eftir að fjarstýringin brotnaði af var ég extra passasöm með þetta. Fjarstýringin fór alltaf beint í vasann. Nú, ég steig út úr bílnum fyrir utan HÍ og fór í vasann til að ná í fjarstýringuna. Ó nó, hólí mólí... nú verður Óli reiður... engin fjarstýring. Ég leitaði og leitaði, á gólfinu, undir sætinu, í hurðinni, í vasanum... fann ekkert. Í móðursýkiskasti ákvað ég að skippa tímanum og keyra aftur upp í Breiðholt til að leita fyrir utan hvort ég hefði misst hana. Þegar ég var komin svona um 200 metra frá Vesturberginu heyrðist hljóð úr hólfi sem ég nota aldrei. Ég laumaði hendinni þangað inn og jú, jú, viti menn! Eitt stykki fjarstýring fundin!
- Mér er meinilla við að skrópa í skólanum þannig að ég ákvað að bruna aftur vestur eftir og ná seinni tímanum. Ég var komin rétt fyrir 10 og frímínútur áttu að byrja klukkan 10. Ég fór því fyrst inn í Odda til að laga lyklavesenið, fá límband til að líma fjarstýringuna við kippuna. Skrifstofan í Odda var lokuð! Men!!!
- Rölti yfir í Lögberg til að bíða eftir frímó. Þar kom bara fullt af afar asnalegum laganemum en aldrei opnuðust dyrnar inn í spænskustofuna. 20 mínútum of seint ákvað kennarinn að það væri mál að taka smá pásu. Hún var alveg í korter þannig að ég náði tæpum hálftíma af tímanum. Jeij! Gagnaðist mér nákvæmlega ekki neitt!
- Í þennan tæpa hálftíma sem ég var inni, tókst mér eftirfarandi: Missa pennaveskið mitt og týna því (tímabundið), missa strokleðrið frá öftustu röð fram í þá fremstu og missa bókina á gólfið. Akkuru er ekki bara hægt að hafa stóla og borð í stofunum??? Akkuru verður maður að hafa stól með grænmetisskurðarbretti?
Nú bíð ég eftir að kafaldsbylur skelli á. Það er fátt sem gæti gert daginn verri! Ég held bara að ég verði að fá nammi til að losna við þennan pirring!
Sunna 11:41
|
|
|
|
|
|
|