|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, september 12, 2003 |
|
|
|
Fríkí stöff
Hversu fríkí er það þegar mann langar að spyrja strák um stelpu-bjútí-tips??? Heimurinn er orðinn svo öfugsnúinn stundum að maður veit varla hvað maður heitir. Ég var að horfa á Ísland í bítið áðan og þar var viðtal við tvær dragdrottningar í tengslum við keppnina dragdrottning Íslands 2003.
Bjútí is pein var nokkuð sem þær/þeir (hvaða orð notar maður um svona???) sögðu. Jú, jú, maður hefur nú svo sem reynt kvalafullar fegurðaraðgerðir en sem betur fer er ég stelpa og þarf því ekki að raka bringu, höku, bak, handleggi eða aðra sambærilega staði. En þessar dragdrottningar þurfa að raka allt alveg gríðarlega vel og í ofan á lag eru þær/þeir með grófari hárvöxt sem þarf að fela vel.
Hvernig í ósköpunum fara þær/þeir að þessu??? Eru þær/þeir með eitthvað síkret trikk svo að það komi ekki útbrot eða inngróin hár eða eitthvað??? Ég meina, maður sér nú oft stráka sem eiga í nógu miklum vandræðum með raksturinn hjá sér og þeir þurfa þó bara að raka höku og vanga! Mjög algengt er að sjá rauða og þrútna húð eftir rakstur svo ég tali nú ekki um þá sem virðast ekki átta sig á að það á að raka ÖLL hárin á höku og í vöngum. Það er bara asnalegt að skilja eitt og eitt hár eftir á stangli.
Hvaða leynitrikk hafa þessar dragdrottningar? Meikið alltaf jafnt, engin hár koma undan netasokkabuxunum þeirra, eye-liner-inn lekur aldrei... MEN hvað mig langar að vita what does the trick!
Sunna 12:16
|
|
|
|
|
|
|