|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, september 29, 2003 |
|
|
|
Japönsk heimsókn
Vúhúhú!!! Var að fá meil frá japanskri vinkonu minni, Natsuko, og hún er að koma til Íslands! Það verður gaman að sjá hana aftur eftir allan þennan tíma. Ég hef ekki séð hana síðan í febrúar 2001. Gott ef ég tek ekki bara til og býð henni í mat!
Eníveis... gærkvöldið var gott. Við Óli leyfðum okkur þann munað að fara út að borða. Austur-Indía fjelagið varð fyrir valinu þar sem indverskur matur er mjög góður og ég hafði aldrei farið á þennan stað, bara heyrt góðar sögur af honum. Við urðum sko ekki fyrir vonbrigðum. Fengum eldrauðan kjúkling, frekar sterkan, og annan kjúklingarétt sem var alveg rótsterkur. Ég logaði í munninum og hálsinum og allar stíflur í nefinu gáfu sig. Munnurinn var svo róaður niður með ágætum bragðaref frá Hebba.
Eftir ísinn náðum við okkur í DVD og spólu en ég gat ekki haldið mér vakandi yfir þessu, ekki frekar en venjulega. Alveg er það endalaust merkilegt hvað ég er alltaf þreytt á kvöldin núna. Ég get ekki með nokkru móti haldið mér vakandi yfir sjónvarpinu. Hvað er til ráða? Þegar mér tekst ekki að halda mér vakandi í gegnum einn Law & Order þátt er ástandið orðið slæmt! En eitt er víst, ég sofna sko ekki yfir Sörvævor í kvöld!
Sunna 09:13
|
|
|
|
|
|
|