|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, september 23, 2003 |
|
|
|
Lágmenningardýrkun
Það er kominn vetur. Fyrir því hef ég þrjár sannanir.- Það féllu nokkur snjókorn áðan
- Sörvævor er byrjaður
- Enn einn A-gaurinn er byrjaður að hössla 25 über-gellur sem eiga þann draum heitastan að verða ráðsettar húsmæður hlekkjaðar við eldhúsvaskinn
Nú get ég aftur farið að njóta þess að leggjast í lágmenninguna og halda með einhverjum í asnalegum keppnum. Ég dýrka keppnir!
Alla vega. Sjóræningja-sörvævor byrjaði í gær. Ég skrapp til Evu að horfa á þáttinn og skemmtum við okkur konunglega yfir honum. Alveg þykir mér makalaust hvað fólk er tilbúið til að leggja á sig. Það fær ekkert nammi, engan skyndibita, ekkert gos, ekki einu sinni föt og svo í ofanálag þarf það að meika samvistina með öllum hinum. Það getur reynst erfiðara en margur heldur. En samt æðislegt að sjá að það er hægt að keppa í því að þola aðra.
Ég er farin að halda að þáttastjórnendur Piparsveinsins velji piparsveina eftir stafrófinu. Alex, Aaron, Andrew... þá hlýtur að vera búið að kovera A-ið nógu mikið. Næsti heitir örugglega Brian eða Bobby eða eitthvað. Kannski er þetta til að geta stuðlað æðisleg viðurnefni við gaurana, t.d. Andrew awsome. Næst verður það Brian Beauty. Þessi keppni er þó enn skondnari en Sörvævor. Þarna fá 25 silikonbombur að keppa um að verða skotnar í Andrew awsome. Hvernig keppir maður í því? Fer það eftir silikon-magninu hver vinnur? Að deita 25 stelpur í einu gefur hugtakinu framhjáhald nýja merkingu.
En hvað um það, ég er svo mikið fyrir lágmenninguna að ég á eftir að liggja límd yfir þessum þáttum næstu vikurnar. Og Alzheimer-stefna Skjás eins fær nú alveg plús í kladdann... ef maður gleymir einhverju þá horfir maður bara á eina af trilljón endursýningum.
Sunna 11:37
|
|
|
|
|
|
|