|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, september 19, 2003 |
|
|
|
Morgunnetrúnturinn
Jæja, þá er maður mættur í vinnuna aftur, búinn að fara sinn venjubundna netrúnt og er í stuði til að blogga. Hefst þá fjörið!
Á nethringnum held ég að ég hafi rekist á bestu klaufasetningu ever. Ef ekki, þá er ég bara svona óheyrilega dörtí mænded. Dæmi hver fyrir sig. Mér finnst bara alveg óendanlega fyndið að Ísi segist ekki hafa verið nógu öflugur bóner. Hmmm... þetta eru nú kannski ekki bestu meðmælin sem strákur gæti gefið sjálfum sér... hmmm...
Númer tvö. Það sem vakti athygli mína á nethringnum er hvað sumir eru duglegir að blogga frá útlöndum. Þórhildur og Anna eru öflugar í Finnlandi og Lovísa er hölt í Chrystal Palace. Vá hvað mig langar í heimsókn. Gaman að fá svona útlandasögur.
Númer þrjú. Eitthvað virðast sumir vefir liggja niðri vegna endurskipulagningar. Hvað er málið? Á þetta að vara lengi?
Númer fjögur. Það verður víst einhver bið á því að ég fari í heimsókn til útlanda þar sem ég er víst á leiðinni út sjálf. Jú, jú, mikið rétt. Ég er á leið til Þýskalands og er erindið að fylgjast með landsleik Þjóðverja og Íslendinga. Miði á leikinn hefur verið staðfestur og búið er að bóka dagsferð út. Nú vantar mig bara ferðafélaga. Ég hefði sennilega getað reddað einum slíkum ef helvítin í KSÍ hefðu haft vit á að taka alla þá miða sem við áttum rétt á. Þeim fannst víst sniðugra að hafa 1.100 manns á biðlista. En það þýðir ekki að gráta það lengi, ég fer á völlinn og mig dreymdi um daginn að ég hefði öskrað á leiknum "VIÐ FÖRUM BEINT Á EM!!!". Það væri nú kúl.
Jæja, þá er það vinnan sem kallar.
Sunna 09:10
|
|
|
|
|
|
|