|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, september 11, 2003 |
|
|
|
Ánægjuleg viðskipti
Jæja, þá hefur gamla tölvan verið seld. Ég kveð hana með trega og söknuði en er þess fullviss að hún sé komin í góðar hendur Jóhönnu Fagrabarms. Ég reyndar gleymdi að segja henni skilmálana en ég bæti úr því hér með:
Jóhanna! Þegar maður á tölvu ber manni skylda til að skrifa pistla reglulega og þá er ákaflega vinsælt að fara fögrum orðum um fyrrverandi eigenda tölvunnar sinnar, sem er, eins og allir vita, langbesta manneskjan í öllum heiminum.
Annars var ég skömmuð áðan. Það er ekki gott. Þegar skammirnar eru réttmætar þá er bara hægt að gera fimmt. (Skemmtilegt orðskrýpi, eitt, tvennt, þrennt, fernt... fimmt)- Biðjast afsökunar á götóttu bloggi
- Lofa bót og betrun
- Útskýra hvers vegna blogg hefur verið götótt
- Fara í æfingabúðir til vélritunarkennara, djöst in keis að færnin hafi minnkað vegna bloggminnkunar
- Breyta um lífsstíl svo að tölvan og netið eigi hug manns allan
Númer eitt: Hjördís! Ég biðst auðmjúklega afsökunar á því að eyðileggja líf þitt með því að vera ekki nógu dugleg við að blogga.
Númer tvö: Ég lofa bót og betrun.
Númer þrjú: Ástæða þess að ég hef verið löt við blogg undanfarið er einföld. Tölvubjánarnir í vinnunni virðast ekki skilja að maður þarf tölvu við vinnuna. Þess vegna hef ég ekki haft neitt slíkt tryllitæki. Loksins þegar ég fékk eina þá var ég að hugsa um að hringja á Árbæjarsafnið að athuga hvort ekki vantaði einn forngrip þar. Ekki er enn búið að tengja hana þannig að ég geti farið á netið eða gert nokkurn skapaðan hlut í henni en það á að lagast á morgun. Þegar maður er í 100% námi og 70% vinnu þá er maður stundum þreyttur á kvöldin og nennir ekki á netið. En ég skal reyna að bæta úr þessu.
Númer fjögur: Það vill svo skemmtilega til að ég fæ einmitt vélritunarkennara reglulega í heimsókn á Hofsvallagötuna. Hann ætti að geta þjálfað mig.
Númer fimm: Hmmm... læt númer fimm kannski bíða örlítið... I've still got a life!
Og þá er það rúmið sem kallar. Ég ætla að verða á undan upp í svo ég fái eitthvað pláss í nótt.
Sunna 22:44
|
|
|
|
|
|
|