|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, september 29, 2003 |
|
|
|
Stórfurðulegt
Alltaf finnst mér jafnskrýtið þegar ég segi eitthvað, sem að mínu viti er háalvarlegt, ja, eða alla vega ekki sagt í neinu gamni, og öllum þykir það hrikalega fyndið. Lenti einmitt í slíkri stöðu áðan þegar ég var að tala við vinnufélaga mína á íþróttadeildinni. Umræðuefnið var einhver pöntun á íþróttaviðburði og ég lét eitthvert ómerkilegt komment falla um það. Það vakti svakalega kátínu og allir skelltu upp úr. Ég hlýt að vera svona óheyrilega fyndin manneskja, svo fyndin að ég fatta það ekki einu sinni sjálf.
Sunna 15:36
|
|
|
|
|
|
|