Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, september 15, 2003


Syndgað um helgina

Jæja, annasöm helgi búin og ég mætt í vinnuna aftur. Mig langar í frí, skreppa til Spánar og slaka aðeins á. En maður getur víst ekki fengið allt.

Annars var helgin fín. Vísindaferð með sagnfræðinemum í Ölgerðina á föstudaginn og hitti nýnema í stjórnmálafræði síðar um kvöldið. Óli fór í nýnemaferð Politicu og varð fullur eins og allir hinir nýnemarnir. Þessi nýnemaferð er alveg frábær. Ég öfundaði hann að vissu leyti yfir því að fara í ferðina... en bara að vissu leyti. Ég er búin að fara í 2 nýnemaferðir og það þykir ágætt.

Þegar ég var komin með nóg af nýnemum fór ég að hitta Hjördísi þegar hún var búin að vinna. Við hittum svo Óla og fórum á Ara í Ögri. Mig grunar að hún hafi ekki verið neitt allt of ánægð með ástandið á okkur. Þegar hún var búin að sporðrenna einum bjór vorum við nær dauða en lífi enda höfðum við byrjað örlítið fyrr að djamma, ég um hálffimm og Óli um sexleytið.

Á laugardagskvöldið gafst okkur tækifæri til að bæta upp fyrir að vera lúin á djamminu kvöldið áður. Ákveðið var að horfa á einhverja fjaðurvigtartitti lumbra hvor á öðrum og sötra bjór með. Hmmm... ég sofnaði í fanginu á Hjördísi og Óli sofnaði í stólnum. Anton og Hjördís afrekuðu hins vegar að halda sér vakandi allan tímann. Af hverju í ósköpunum sýna þeir boxið svona seint um nóttina???

Í gær náði ég þó að halda mér vakandi. Stelpunum úr MR var boðið í heimsókn og ég fór upp á kellingalevel eina kvöldstund, bjó til heitan brauðrétt og tók þátt í brúðkaupsumræðum. Mér finnst ég hafa syndgað alveg hrikalega! Orkan í dag fer því að mestu í því að ná mér niður aftur og verða 18 ára á nýjan leik. Ég er svo óþroskuð og barnaleg.

Sunna 12:57


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli