Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

laugardagur, september 20, 2003


Vitlaus fyrirsögn

Eitthvað klikkaði fyrirsögnin í færslunni áðan. Ég ætlaði að skrifa um veðrið en færðst svo öll í aukana og fór að skrifa um allt annað.

Ég var bara að velta fyrir mér hvort ég ætti að hætta mér út í þetta veður. Óli þykist ætla að horfa á Valsarana berjast til síðasta blóðdropa um sæti í úrvalsdeildinni. Mínir menn eru víst orðnir meistarar og búnir að fá dolluna afhenta. Ég held að ég láti þess vegna bara fara vel um mig í hægindastólnum mínum með laugardagsnammipoka og horfi á Sýn í stóra sjónvarpinu hans Óla sem er í flotta skápnum sem Anton átti. Jón býr reyndar ekki í þeim skáp. Mamma stendur í þeirri trú að sjónvarpið sé bíll en það er önnur saga og útúrdúr. Það segir reyndar ýmislegt um móður mína að hún stendur einnig í þeirri trú að gullfiskurinn Bara sé karfi. Tel ég það sýna glögglega að hún hefur aldrei lært fiskifræði.

En aftur að fótbolta og ógeðsveðri eða "Back to Angus and those sheep" eins og segir í frægri mynd. Veðrið er eitthvað frekar ólekkert í dag. Örugglega ömurlegt að spila fótbolta í svona ógeði og enn ömurlegra að horfa á fótbolta á lélegum velli Hafnfirðinga, sem ekki hefur jafn glæsilega yfirbyggða stúku og Vesturbæjarstórveldið. Svo spiluðu mínir menn líka afar illa í síðasta leik og eiga því ekki skilið að fá áhorfendur í svona veðri. Nei, það er bara kátsj poteitó í dag.

Sunna 11:22


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli