|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, september 26, 2003 |
|
|
|
Völtum yfir Kópavog!
Eftir hádegi í gær héldu hrakfarir mínar áfram eftir alveg hrikalegan morgun. Ljósi punkturinn við daginn var að Óli gaf mér ís til að reyna að hressa mig við. Síðdegis fór hann í fótbolta og rétt áður röltum við aðeins um Kringluna til að drepa tímann áður en fótboltinn byrjaði. Við vorum svona í 20 mínútur þar inni og á þeim tíma var Óli í símanum í svona 17 mínútur. Dónar og durtar úr Heimdalli hringdu úr öllum áttum til að kaupa atkvæði. Leggjum Heimdall niður, enda er það ekkert nema vettvangur ofstækistrúarmanna sem tilbiðja Björn, Davíð og Geir.
Alla vega. Eftir þessa truflun ákvað ég að fara í Kópavoginn til að borga Þýskalandsferðina mína. Skrapp fyrst aðeins í Smáralindina og eftir að hafa fundið peysu (sem ég hef leitað að í mörg ár!) í Zöru lagði ég í hann. Úrval Útsýn, Hlíðarsmára 15. Ég hafði hringt í mömmu til að fá upplýsingar um hvar ferðaskrifstofan væri. Ég fann Hlíðarsmárann nokkuð auðveldlega (ótrúlegt að eitthvað finnist auðveldlega í Kópavogi) en þegar kom að því að finna húsið var annað upp á teningnum. Hlíðarsmári 8, 10, 12 og 14 blöstu við. Þá fann ég líka 9 og 11. Meira fann ég ekki.
Ég var alveg við að gefast upp þegar ég þrammaði inn á Smárahótel til að spyrja til vegar. Stelpan benti mér hvert ég ætti að fara "Sérðu húsið þarna í Holtasmára, það stendur á því Hlíðarsmári 15..." Af hverju í andskotanum er Hlíðarsmári 15 og 17 við Holtasmára??? Við nánari athugun kom í ljós að Hlíðarsmári 13 stendur við Hólasmára! Hvað er málið eiginlega???
Það á bara að valta yfir Kópavoginn, reisa þar nýjan þjóðarleikvang Íslendinga í knattspyrnu (og hafa í huga allt sem þarf að nota þegar halda á Ólympíuleikana, svo við getum sótt um). Leikvangurinn gæti þá tekið 50.000 manns í sæti og þannig væru kannski eftir einhverjir miðar á landsleiki þegar KSÍ væri búið að gefa öllum sponsorum miða. Afganginn væri svo bara hægt að malbika yfir og leggja flugbraut. Þannig yrði hægt að flytja Reykjavíkurflugvöllinn úr Vatnsmýrinni og fullt af fólki gæti þá andað rólega. Flugvöllurinn yrði engum til ama þarna í Kópavogi þar sem enginn býr á íþróttaleikvangi. Svo yrði líka mjög stutt að rúlla í Fossvoginn með slasaða ferðalanga.
Kópavogur er eitt misheppnaðasta bæjarfélag á landinu. Það er vettvangur arkítekta með pervertískar hneigðir (Smáralindin besta dæmið), glataðra deiliskipuleggjenda, ömurlegra gatnagerðarmanna og Lilla úr Brúðubílnum. Eftir að hafa reynt að læra litina í um 50 ár hlýtur honum að hafa farið eitthvað fram. Hann ætti þá að geta ratað eitthvað um í Litalandi í Kópavogi, þar sem allar götur eru litaðar.
Ég vona að enginn af bæjarskrifstofum Kópavogs hafi lesið þetta. Þangað er ég nebbla að fara í vísindaferð á eftir og vona að mér verði gefinn smá bjór. Hmmm... kannski spurning dagsins verði "Hvers vegna er Hlíðarsmári 15 við Holtasmára?"
Sunna 11:03
|
|
|
|
|
|
|