|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, október 14, 2003 |
|
|
|
Aumir puttar
Nú eru puttarnir mínir ekki þeir allra hröðustu á lyklaborðinu. Ástæðan er sú að ég er helaum í fingrunum út af gríðarlegum harðsperrum og strengjum. Undir venjulegum kringumstæðum væri alveg skelfilegt að vera svona handlama en þessi stirðleiki kemur þó til af góðu. Af og til fórnar maður þægindum fyrir önnur þægindi.
Já, hin þægindin, sem ég fékk á kostnað aumra putta, voru góður nætursvefn með heilmikið pláss. Ég hafði svo mikið pláss að ég hélt að ég væri ein í rúminu. Við erum sum sé búin að flytja ofurrúmið á Hofsvallagötuna og gamla rúmið mitt er komið í Vesturberg. En svona ofurrúm eru erfið viðureignar þegar bera á þau upp og niður stiga. Hinn geðveiki vélritunarkennari var fenginn til að aðstoða það sem ég hafði hvorki tíma né vöðva til að klára flutningana. Ég þurfti því bara að bera rúmið niður úr Vesturberginu og upp í bílinn. En það var nú samt alveg djöfulli erfitt fyrir litlu puttana mína. En samt fullkomlega þess virði... mmmm... gott að sofa í góðu rúmi.
Ekki svo að skilja, mitt rúm er alveg stórfínt líka, ein og hálf breidd og mér hefur aldrei liðið illa í því. En þegar tvær manneskjur eru farnar að slást um plássið í því þá er kannski sniðugra að sofa bara í rúmi sem rúmar báða aðila. En nú er ég farin að blaðra of mikið um rúm. Nú langar mig bara upp í rúm...
Sunna 09:52
|
|
|
|
|
|
|