|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, október 27, 2003 |
|
|
|
Búúú!
Í gærkvöldi skruppum við Hjördís út á vídjóleigu. Monsters Inc. varð fyrir valinu af því að hvorki Hjördís né Óli höfðu séð hana. Þar sem við tókum myndina á DVD fylgdi svona bónus material með, ein af uppáhaldsmyndunum mínum; For the birds. Það er alveg sprenghlægileg stuttmynd og ég man að þegar ég fór á Monsters í bíó kafnaði ég úr hlátri yfir þessari mynd, sem var sýnd á undan.
Eníveis. Monsters er alveg stórskemmtileg mynd, ein af þeim sem ég get horft á aftur og aftur (fór tvisvar á hana í bíó, bæði með ensku og íslensku tali). Þegar ég var að skoða IMDB áðan fór ég að skoða hverjir hefðu lánað karakterunum raddir sínar og kom þá nokkuð á óvart hversu ung stelpan, sem leikur Boo, var. Bara tveggja og hálfs þegar myndin var talsett. Hvernig í ósköpunum var hægt að fá svona lítið barn til að talsetja svona svakalega vel? Ok, kannski ekki talsetja, enda talar barnið lítið í myndinni. Hljóðsetja skulum við segja. Hæfileikaríkur krakki, engin spurning!
Sunna 08:59
|
|
|
|
|
|
|