Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, október 20, 2003


Breyttur lífsstíll

Ég hef verið svolítið lítil. Í gær kvöldi leið mér ekkert rosalega vel en sem betur fer á ég frábæran Óla sem er alltaf tilbúinn til að reyna að láta mér líða betur. Ég svaf ekkert allt of mikið í nótt. Allt of mikið stress út af allt of mörgum málum setti strik í reikninginn. En nú er mál að snúa við blaðinu.

Eftir mikla íhugun hef ég ákveðið að hefja átak. Ég ætla ekki að bíða eftir að allt verði komið í óefni heldur er stefnan nú sett á að taka upp heilbrigðari lífshætti. Mér hefur að mestu tekist að virða nammidaginn í nokkra mánuði. Stundum kemur þó bakslag og þá lætur maður eitthvað eftir sér. Skyndibitann hefur ekki verið alveg jafnauðvelt að forðast.

Mjög stór hluti af fjölskyldunni minni hefur greinst með of hátt kólestról. Ástæðan hefur einna helst verið að þau hafa ekki farið að passa sig fyrr en þau hafa fengið viðvörun frá lækni. Ekki svo að skilja að allir liggi í skyndibitafæði og sælgæti, þvert á móti. Kólestrólrík fæða, eins og smjör, egg og ostar, hefur hins vegar verið helsti orsakarvaldurinn.

Ég vil helst ekki þurfa að takast á við þennan vanda. Þess vegna ætla ég nú að breyta um lífsstíl, minnka skyndibitann, minnka sælgætisátið og hreyfa mig meira. Þá er ekki vitlaust að skera niður kólestrólið líka því annars er ég viss um að ég fæ það bara í hausinn seinna. Eða hjartað.

Í morgun var viðtal við Gauja litla í útvarpinu. Merkilegt að hann skuli vera að auglýsa nýtt námskeið akkúrat þegar ég er í þungum þönkum út af heilsumálum. Þegar ég heyrði viðtalið minntist ég átaksins sem hann fór í, í beinni útsendingu í Sjónvarpinu fyrir nokkrum árum. Hann náði árangri en sagði síðar að það hefði ekki verið sniðugt að fara í svona stífa megrun og missa þetta mörg kíló á svona stuttum tíma. Engu að síður hefði þetta hjálpað honum til að taka upp hollari lífshætti. Kannski er það málið. Kannski er ekki nóg að vera alltaf að pukrast í einhverju leyniátaki. Þess vegna er ég komin í alvöru átak, egg og ostar settir á sparilista og ég óska eftir stuðningi.

Sunna 10:26


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli