|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, október 21, 2003 |
|
|
|
Byrjar vel
Ég er svo dugleg að ég á varla til orð. Þegar ég kom heim úr skólanum áðan var Óli búinn að fara út að kaupa í matinn. Ég kom heim alveg glorhungruð og var því ótrúlega sátt við allan þennan mat sem var til. Ekki nóg með að til væri alveg gomma af mat, heldur var þetta allt voða hollt og gott. Ég fékk mér því staðgóðan hádegisverð (já, hádegið hjá mér er þegar ég hef lausan tíma, þ.e. eftir skóla): Maltbrauð, kotasælu, skinku, gúrku, drykkjarjógúrt... mmm... ýkt gott. Svo gekk ég frá matnum eftir mig. Það þykja heldur betur tíðindi. Ætli hollustan bæti ekki bara minnið???
Eníveis... ég á nú alveg skilið góða einkunn fyrir þetta.

Sunna 16:25
|
|
|
|
|
|
|