|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, október 21, 2003 |
|
|
|
Einkunnakerfi
Jæja, þá er einkunnakerfi komið. Nú verð ég eins og litlu börnin með orkubókina og fæ plús-stig eða mínus-stig eftir því hversu dugleg ég verð. Fyrir hreyfingu og hollan mat fást plús-stig og fyrir skyndibita fást mínus-stig. Mínus er ekki góður, svo mikið kann ég í stærðfræði. Þá er bara að demba sér út í hollustuna. Laugardagar eru samt undanþegnir allri hollustu og ef ekki er hægt að syndga á laugardegi má taka hann út annan dag. Reglan er sum sé sú að það má syndga einn dag í viku.
Hreyfing: 
Skyndibiti: 
Hollur matur:
Já, og svo er eitt annað. Batnandi mönnum er best að lifa. Ég skora á aðra í átak með mér! Koma svo!!!
Sunna 10:03
|
|
|
|
|
|
|