|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
miðvikudagur, október 29, 2003 |
|
|
|
Þetta sífulla pakk!!!
Men hvað ég þoli ekki ógeðslegt fólk sem talar niður til manns með smeðjulegum og tilgerðarlegum vináttuorðum, sem ekki er hægt að skilja á neinn hátt nema að maður sé einhver þræll eða þjónn fyrir viðkomandi. Svona fólk á að loka inni og kenna því mannasiði.
Rétt áðan hringdi í mig maður, nánast gelti á mig að ég ætti að finna eitthvað efni fyrir hann á safninu og svo ávarpaði hann mig elsku Sunna mín, vinkona mín eina... þú gerir þetta núna fyrir mig og verður búin að finna þetta fyrir mig þegar ég hringi í þig eftir 10 mínútur! Hmmm, datt honum í hug að spyrja mig hvort hægt væri að fletta þessu upp í dag? Eða kannski tékka hversu langan tíma svona vinna tekur? Nei, tilgangur lífs míns er að þjónusta hann á alla lund. Ég er viss um að hann biður mig um að elda fyrir sig kvöldmatinn þegar hann hringir á eftir. Ógeð!
Það er nú annað en hann vinur minn hann Ísidór. Ísidór er tæknimaðurinn minn. Þegar öll tæki eru í notkun hjá mér bið ég hann um að yfirfæra fyrir mig. Ísidór er alltaf góðmennskan uppmáluð. Um daginn bað ég hann um að yfirfæra fyrir mig þegar hann mætti vera að, það lægi ekkert á þessu. Svarið sem ég fékk var: Sunna mín, elsku vinan mín... ég veit ekki hvort ég næ þessu fyrir hádegi en ég skal gera mitt besta. Ég var nú bara að meina svona í þessari viku eða svo...
Um daginn mætti ég til hans með spólur. Þá sagði hann við mig: Sunna mín, elsku dúllan mín, hvað get ég gert fyrir þig. Þú ert algjör engill! Ísidór er æði, ekkert flóknara en það. Já, það er gott að vita að einhverjir hafa eitthvert álit á manni.
Ég vil koma skilaboðum til ljóta mannsins sem hringdi í mig áðan og kynnti sig ekki einu sinni. Þú ert dóni og durtur og mér dettur ekki í hug að finna þessa mynd fyrir þig fyrr en á föstudaginn! Og hana nú!
Sunna 14:37
|
|
|
|
|
|
|