|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, október 27, 2003 |
|
|
|
Freddy dýrlingur
Um daginn var ég að hlusta á útvarpið í bílnum, sem er kannski ekki í frásögur færandi. Ég hlusta oft á útvarpið í bílnum, vælustöðin Létt verður þá oftast fyrir valinu og oftar en ekki kemur fyrir að ég syng með. En það er annar handleggur.
Ég var að keyra og þá kom dúndurlagið Great Pretender, sem Freddy Mercury söng listavel um árið. Eftir lagið byrjaði útvarpskonan að tala. Svo sem ekkert nýtt við það, útvarpsfólk fær jú borgað fyrir að tala. Stundum tjáir það sig örlítið um tónlistarmennina eða tónlistina sem það spilar. Mennirnir eru eins misjafnir og þeir eru margir, sumir eru greindari en aðrir, sumir eru mun heimskari en aðrir. Og það var akkúrat það sem mér datt í hug þegar útvarpskonan byrjaði að tala.
Strax eftir lagið impraði hún á nokkrum staðreyndum um lagið:
Þetta var lagið Great Pretender með Freddy Mercury...
Allt í gúddí með það. Svo hélt hún áfram:
Ég skil nú ekki alveg málið með hann. Freddy Mercury hefur af einhverjum ástæðum verið tekinn í nokkurs konar dýrlingatölu. Ég bara skil það ekki...
Ok, númer eitt: Manneskja sem segir svona á ekki að vinna í útvarpi.
Númer tvö: Manneskja sem segir svona á ekki að vera til yfir höfuð.
Númer þrjú: Alveg sama hvaða tónlistarsmekk fólk hefur, það er ekki hægt að líta framhjá þeirri staðreynd að Freddy Mercury er sennilega einn magnaðasti söngvari sem uppi hefur verið. Svakalegt vald á röddinni sem maðurinn hafði. Maður fær alveg gæsahúð við að hlusta á lög með honum.
Alveg er ég viss um að Sigurrós Queen-aðdáandi með meiru er alveg sammála mér. Það er óumdeilanleg staðreynd að Freddy Mercury var snillingur!
Sunna 09:57
|
|
|
|
|
|
|