|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, október 27, 2003 |
|
|
|
Fyrir 5 árum
Ég var í svo drepleiðinlegum tíma áðan hjá katalónska kennaranum mínum að ég er að spuglera að hætta að mæta í þessa tíma. Maðurinn er svo veruleikafirrtur að það hálfa væri nóg. Þar sem ég sat í tímanum og fylgdist ekkert með fór ég að rifja upp gamla tíma og fór að pæla í hvernig ástandið hefði verið fyrir 5 árum. Sumt sem maður saknar, annað sem maður saknar ekki. Eftirfarandi eru niðurstöður pælinga minna:
Fyrir 5 árum...- ...var ég í 6. C í MR. Góður bekkur og ég sakna bekkjarkerfisins soldið.
- ...var ég 50 kíló. Úff, er aðeins þyngri núna. 50 kíló var reyndar allt of lítið og ég leit ekki vel út. Það er ýmist í ökla eða eyra. En það stendur nú til að bæta úr því.
- ...var ég á lausu. Er það ekki núna.
- ...bjó ég hjá mömmu og pabba. Á mína eigin íbúð núna og bý í henni. Það er kúl.
- ...þekkti ég ekkert fólkið sem ég hef mest samskipti við núna (fyrir utan fjölskylduna).
- ...var ég ekki orðin föðursystir. Nú á bróðir minn tvö ýkt sæt börn.
- ...var ég ekki í vinnu með skólanum. Nú vinn ég allt of mikið.
- ...var ég með síðara hár. Helvíti erfitt að ráða við það.
- ...var ég aðeins minni tossi í skólanum. Bara aðeins minni samt.
- ...var ég 18 ára. Sumt breytist aldrei, ég er enn 18 ára!
Já, eitthvað verður maður að finna sér til dundurs í leiðinlegum tímum í skólanum.
Sunna 13:00
|
|
|
|
|
|
|