Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

sunnudagur, október 19, 2003


Fyrirsögn óskast

Datt engin viðeigandi fyrirsögn í hug. Lýsi hér með eftir einni.

Í gær var partý. Það var gaman. Tilefnið var ammæli Óla nokkurs sem ég kannast örlítið við. Hópurinn var soldið merkilegur kokteill. Þarna voru samankomnir verslingar og þótti mér nú lítið fútt í þeim. Allir bláedrú... ja eða næstum því allir. Þeir mingluðu líka afar lítið. Næst ber að nefna sagnfræðinema. Stórfurðulegt lið en afar skemmtilegt. Maður sem mætir með gítar í partý fær plús í kladdann. Síðasti hópurinn fær nafnið Fiskar á þurru landi. Í þeim hópi eru Anton, Þórir, Hjördís og ég. Anton er reyndar verslingur en ekki úr sama hóp og hinir verslingarnir. Hjördís er magnaður MR-ingur eins og ég og höfum við öll önnur tengsl við Óla en hinir hóparnir. Hlutverk mitt í partýinu var að vera djús-stjóri ríkisins en það starf er afar mikilvægt. Það snýst um að sjá til þess að djús-byrgðir séu alltaf nægilega miklar og djúsinn sé eins ferskur og hægt er að hugsa sér. Ekki spillir fyrir að bæta örlítilli gin-skvettu út í nýpressaðan djúsinn, bara svona rétt til að skerpa á bragðinu. Kvöldið fær þrjár stjörnur.

Annars er eitt og annað búið að valda mér hugarangri þessa helgina. Náinn ættingi fékk hjartaáfall og var hætt kominn. Hann er sem betur fer á batavegi eftir hjartaþræðingu. Ég hef ekki getað komist hjá því að hugsa um hvort ég þurfi að láta mæla kólestrólið í blóðinu hjá mér þar sem óhugnanlega margir í fjölskyldunni minni hafa mælst með of hátt kólestról. Þetta er ættgengur andskoti og því miður er maður allt of kærulaus til að hugsa um eitthvað svona fyrr en ógæfan dynur yfir.

Á morgun á ég að fara í próf hjá hundleiðinlegum kennara sem er haldinn svakalegri veruleikafirringu. Hann er katalónskur og hrokafullur alveg í takt við það. Hann skilur engan veginn að nemendur hans eru íslenskir og hafa kannski ekki alveg sama vald á spænskunni og hann. Mig langar helst til að melda mig veika í prófið.

Áðan fann ég síðu sem truflaði mig svolítið. Ég veit eiginlega ekki alveg af hverju en það sem ég las hafði áhrif á mig. Samt á það ekki að hafa áhrif á mig. Stundum er maður lítill í sér og þá þarf lítið til að ýta við manni. Þetta kennir manni að vera ekki forvitinn.

Já, ég er lítil núna.

Sunna 20:41


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli