|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, október 31, 2003 |
|
|
|
Í góðu skapi
Ég og Óli skruppum í Byko áðan til að kaupa flísar á eldhúsvegginn. Nú á sko heldur betur að leggjast í framkvæmdir á Hofsvallagötunni. Skal þar allt verða flott og glansandi fyrir jól og því ekki seinna vænna að byrja á herlegheitunum. Annars er ég nú nokkuð viss um að flísarnar eiga eftir að liggja óhreyfðar einhvers staðar úti í horni nokkurn tíma áður en við drullumst til að gera eitthvað.
Eníveis... ýkt flottar bláar mósaík-flísar urðu fyrir valinu. Óli spurði búðarmanninn hvort hann vildi selja okkur flísar. Það var bara eins og við manninn mælt, hann lifnaði allur við. Það var eins og Óli hefði ýtt á takka á honum og hann hefðir verið prógrammeraður sérstaklega til að vera fyndinn. Brandararnir gubbuðust upp úr honum kerfisbundið eins og hann fengi auka prósentur fyrir að vera fyndinn við viðskiptavinina. Ég skemmti mér alveg ágætlega, sérstaklega þegar hann sagði mér að það væri alveg óþarfi af mér að vera að borga 10% meira en ég þyrfti. Þess vegna stofnaði hann fyrir mig staðgreiðsluafsláttarkort. Vá hvað þetta er langt orð.
Gaman að fá svona skemmtilegar móttökur í búð. En, sum sé, nú er hægt að fara að flísaleggja á Hofsvallagötunni. Leggur einhver í veðmálspott um hversu langan tíma tekur að byrja á því verki?
Sunna 14:43
|
|
|
|
|
|
|