|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
miðvikudagur, október 29, 2003 |
|
|
|
Hetjan ég
Loksins er ég komin á réttan kjöl. Ég er búin í menningarprófinu, búin að skila öllum overdue verkefnum og búin að fara á fótboltaæfingu!
Ég reyndi að vera dugleg í gær og lesa og lesa fyrir próf. Það gekk reyndar betur en ég átti von á en þó ekki nógu vel. Ég kláraði að lesa allt efnið í bókinni en las bara nokkrar glærur. Prófið gekk því bara svona upp og ofan. Kennarinn, sem mér finnst alveg drepleiðinlegur, virðist auk þess hafa talsvert álit á mér og sagði að prófið liti nú ekkert illa út. Whatever. Eftir að ég var búin í prófinu tók hann mig á eintal og sagði að sér virtist sem ég væri sú eina af nemendum hans sem talaði illa um tímana hans. Mér brá og hélt eitt andartak að hann væri farin að skilja fullmikið í íslensku. Síðan bætti hann reyndar við að hann héldi að ég væri sú eina sem þyrði að segja eitthvað og gagnrýna hann.
Síðast þegar hann spurði mig hvernig mér þættu tímarnir vera sagði ég eins og var, mér fyndist þeir ekkert þeir allra skemmtilegustu. Ég stóð fast á mínu áðan, sagði að mér þættu tímarnir hundleiðinlegir og ég gæti engan veginn haldið athyglinni. Hann virtist sáttur við það og lofaði bót og betrun. Ætli hann fíli það að vera ekki fílaður? Þegar ég sagði honum að mér fyndust katalónar hrokafullir og leiðinlegir (já, ég veit, soldil alhæfing... samt eitthvað til í þessu) þá gaf hann mér 9 fyrir verkefni! Fine by me!
En þá að öðru máli, öllu skemmtilegra. Ég mætti á fyrstu fótboltaæfinguna hjá Þrótti í gær. Það var nú bara nokkuð kúl. Allt annað heldur en þegar ég var hjá HK/Víkingi. Stelpurnar voru flestar á mínum aldri og virkuðu bara hressar. Ég var ekkert ógeðslega léleg þótt ég hefði nú heldur ekkert verið að brillera. Nú er ég hins vegar að drepast úr harðsperrum í maganum. Skrýtið, gerði bara 120 magaæfingar. Venjulega fæ ég ekki mikið í magann nema ég fari vel yfir 200. En ég er mjög stolt af mér að hafa farið á æfinguna. Það getur verið svolítið erfitt að rífa sig svona upp og byrja á einhverju sem maður hefur ekki gert í mörg ár. Nú er bara að endast aðeins í þessu. Koma svo!
Sunna 12:38
|
|
|
|
|
|
|