Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

föstudagur, október 03, 2003


Hórur!!!

Það er aumt hlutskipti að vera ég þessa dagana. Ég er með svo mikla hálsbólgu að ég get ekki skrifað. Hún hefur verið að koma hægt og rólega síðustu dagana en svo í gærkvöldi ákvað hún að bresta á með látum. Hjördís kom í heimsókn í gær eftir vinnu í Batsjelor-gláp. Doritos og kók fékk einnig að eyða tíma fyrir framan sjónvarpið. Soldið fyndinn kúltúr hjá Hjördísi við að horfa á piparsveininn. Með reglulegu millibili, kannski á svona tveggja mínútna fresti, gargaði hún hástöfum HÓRUR!!! HÓRUR!!! - Vá, píkuskrækir! Það fannst mér hrikalega fyndið. Henni finnst þetta vera eitthvað asnalegur þáttur. Alla vega. Síðar um kvöldið setti ég á mig trefil af því að hálsinn var orðinn aumur og ég er ekki enn búin að taka hann af mér. Já, ég svaf með trefilinn. Það hefur sennilega verið skondin sjón að sjá mig í nótt; ég var með trefil, teygjubindi um úlnliðinn út af sinaskeiðabólgu, og fléttur í hárinu.

Eníveis... ég datt inn á þátt í gær, Malcom in the middle. Það væri kannski ekki í frásögurfærandi nema hvað að þátturinn var á íslensku! HVAÐ ER MÁLIÐ??? Ég bjó á Spáni í eitt og hálft ár. Þar er allt sjónvarpsefni döbbað. Þar talar varla nokkur sála ensku. Þar er ólæsi töluvert meira en á Íslandi. Þar er leiðinlegt að horfa á sjónvarp. Ráðamenn á Skjá einum virðast ætla að stuðla að sambærilegri ómenningu á Íslandi; koma í veg fyrir að fólk þjálfist í að lesa og læri ensku. Hins vegar gæti þetta einnig leitt til þess að fólk horfi minna á sjónvarp en ella og það væri kannski ekki svo slæmt. En ég held samt að flestir geti verið sammála um það að enskukunnátta og lestrarkunnátta séu nokkuð krúsjal ef fólk vill komast eitthvað áfram í lífinu... hmmm... En whatever, ég horfi aldrei á þennan þátt hvort eð er þannig að ég finn mest lítið fyrir þessari nauðgun. Mér finnst þetta samt asnalegt.

Sunna 10:04


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli