|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, október 28, 2003 |
|
|
|
Kjötsúpuígildi
Ég fór upp í mat áðan af því að ég gleymdi að koma með nesti. Annars fer ég aldrei í þetta mötuneyti því þar er sjaldnast til ætur biti. Þess vegna hefur maður yfirleitt endað með feita Júmbó-samloku með majonessósu eða remúlaði. En sökum átkas vildi ég ekki feita (samt ýkt góða) samloku þannig að ég ákvað að tékka hvernig súpa væri í boði.
Um daginn var rjómalöguð gulrótarsúpa í boði nokkra daga í röð. Eins og allir vita er það brot á mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Í dag sá ég hins vegar einhverja hvíta súpu, sem ég vonaði innilega að væri blómkálssúpa. Nei, ekki aldeilis. Sellerísúpa! Ojj!!! Ég meina, þá er nú alveg eins hægt að gera njólasúpu. Nema hvað, njólinn er aðeins betri á bragðið en sellerí.
Alla vega, þegar kokkurinn sá svipinn sem kom á mig var hann fljótur að bæta við: "En viltu kjötsúpu?". Kjötsúpa er eitt það besta sem ég veit (ásamt óhollustu og dónalegheitum) og veðrið í dag er alveg kjötsúpulegt, krapi og hálka úti, skítakuldi. Ég tók því kjötsúpuna hæstánægð, keypti mér Kristal og settist. Súpan var fín... nema það vantaði bara kjötið í hana!!! Það var ekki einn einasti kjötbiti í súpunni. Þarna keypti ég sko heldur betur köttinn í sekknum. Má ég þá heldur biðja um kjötsúpu a la pabbi en það er besta kjötsúpa í heimi. Nú er ég sum sé búin að slafra í mig soðið vatn með súputening og smá grænmeti. Bömmer. Bið pabba um að bjóða mér í kjötsúpudinner um helgina til að láta mér líða betur. Pabbi er besti kokkur í heimi.
Sunna 12:27
|
|
|
|
|
|
|