|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
sunnudagur, október 26, 2003 |
|
|
|
Éttu skít
Og hana nú! Nei, annars, ekkert skítkast hér. Annars varð ég vitni að stórfurðulegri hegðun hjá gullfisknum okkar í dag. Ég greip hann glóðvolgan við að kúka í skálina. Það er svo sem ekki í frásögur færandi, enda er það alkunna að gullfiskar kúka, rétt eins og aðrar lífverur. Kúkurinn hangir þá svona neðan úr þeim í svona lengju. Ansi mögnuð sjón. Svo er svona himna utan um kúkinn og stundum er hún lengri en skíturinn sjálfur.
Þetta var raunin í dag. Skíturinn lafði, stór og myndarlegur, himnan var stærri og hékk aftan úr kúknum. Bara synti um í hægðum sínum í skálinni. Literally. Hann synti og synti og hægðirnar héngu neðan úr honum og virtust bara ætla að vera þarna í endaþarminum á honum. Nema hvað, allt í einu losnuðu hægðirnar frá og dóluðu þarna um í vatninu. Bara synti áfram eins og hann ætti lífið að leysa.
Eftir nokkra hringi var Bara sennilega búinn að gleyma því að hann hefði nýlokið við að kúka. Það er jú alþekkt staðreynd að gullfiskar eru ekki með mesta skammtímaminni í heimi. Þetta tel ég vera eina helstu skýringuna á gjörðum hans. Sum sé, hann var búinn að synda nokkra hringi og kemur þá að því að hann syndir að kúknum sínum þarna í skálinni. Hvað gerir hann? Jú jú, án þess að blikna át hann kúkinn!!!
Ég hafði fylgst með þessu ferli nokkra stund og haft gaman af en við þetta varð ég orðlaus af undrun. Í ljós kom sum sé að Bara hefur enga mannasiði, leggur sér hægðir sínar til munns eins og það sé bara herramannsmatur. Ég sat á gólfinu og gólaði og gargaði til að lýsa hversu ógeðslegt mér þótti þetta vera. Bara fannst greinilega gaman að sjokkera mig og ákvað því að ganga alveg fram af mér. Hann synti um nokkra hringi, kjammsaði á kúknum og svo hrækti hann út úr sér himnunni í tveimur hlutum.
Það er alveg ljóst að það þarf að taka uppeldi Bara til endurskoðunar. Ég held að afskiptaleysi Óla síðustu daga hafi sennilega valdið skyndilegri geðveiki fisksins, sem lýsir sér svona. Agalegt ástand.
Sunna 20:12
|
|
|
|
|
|
|