|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
laugardagur, október 25, 2003 |
|
|
|
Vangaveltur
Jæja. Fyrsta föstudagskvöld átaksins liðið og það gekk ágætlega. Var bara róleg í því í gær, 3 bjórar, smá snakk og fór snemma heim í rólegheit. Fékk mér epli þegar ég kom heim og horfði á asnalegt fólk í Djúpu lauginni. Vá, hvað þetta er asnalegur þáttur.
Nú í morgunsárið sit ég svo við tölvuna og á mig hafa vaxið hali og horn. Velti fyrir mér hvað sumt fólk þurfi að gera til að átta sig á hvernig það er. Er að spá í að leggjast bara í föndur með Óla og framleiða vúdúdúkkur í gríð og erg. Smá illkvittnislegur-antonslegur húmor er að fæðast. Hmmm... verð eiginlega að bera þessa hugmynd undir Anton sjálfan, fá hann til að spæsa hana aðeins upp og gera hana virkilega nastí. Stundum vaxa á mig hali og horn. Stundum er það alveg af sjálfsdáðum. Oftast er það hins vegar eitthvað sem ýtir á mig. Það er raunin núna. Reap as you sow. What comes around, goes around. Eða var það kannski öfugt. Whatever.
Annars er nú alveg spurning um að gera eitthvað framleiðið í dag. Nokkrar hugmyndir fæðast. Nei annars, það kom engin hugmynd. Nú er ég bara farin að bulla. Þá er kannski mál að hætta. Já, held það bara. Rétt að lokum koma einkunnir gærdagsins:

Sunna 12:07
|
|
|
|
|
|
|