Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, október 06, 2003


Það var og...

Helgin var svo þétt pökkuð að ég hafði ekki tíma til að gera neitt af viti. Í fyrsta skipti í langan tíma var ekki djamm á föstudagskvöldi. Það var ágæt tilbreyting og gott fyrir lifrina að fá að jafna sig örlítið. Eftir að ég hafði rumpað einni ritgerð af á tveimur klukkutímum skrapp ég til Hins geðveika vélritunarendurskoðanda þar sem málunartímið var að mála og drekka bjór. Hjördís kom með og steiktir brandarar flugu hægri-vinstri eins og venja er þegar steikt lið kemur saman.

Á laugardaginn mætti ég í vinnu klukkan 9, frekar slöpp og raddlítil. Það var þó ekkert miðað við vinnufélaga minn. Ása var nebbla græn í framan og alveg eins og nýstigin upp úr gröfinni. Hún hafði fengið einhverja matareitrun eða pest og ég sendi hana heim eftir að Eva samþykkti að leysa hana af. Eftir vinnu mælti ég mér mót við Harry nokkurn Kewell. Það er merkur maður sem gleður lítil Liverpool hjörtu. Því næst keypti ég mér nammi í Nammilandi (ég fæ bráðum nammilenskt ríkisfang...) og lét eina gelgju-DVD fylgja með. Legally blonde stendur alltaf fyrir sínu. Síðar um daginn náði ég í handboltadómarann og við fórum heim að hafa okkur til fyrir dinnerpartýið.

Eru ekki nautalundir bara besti matur í heimi? Ég held það. Nautalundapiparsteik með piparostasósu, gratíneruðum kartöflum, brokkólí og maís slógu alveg í gegn. Slógu reyndar ekki út nautalundirnar á Argentínu en engu að síður alveg himneskur matur.

Ammælispartý Kötu var fínt. Pool og staup eins og hefðin er orðin. Bannað að vinna í pool án þess að taka sigurstaupið að vali taparans. Bærinn með Ísa og Hjördísi og ég meikaði djammið til klukkan 4 mínútur yfir 4!!! Ótrúlegt. Hitti fullt af fólki. Ber þar helst að nefna eftirfarandi aðila:
  • Hulda. Hulda ein af GF-frúm, afar mikill stuðbolti og skemmtileg stelpa. Hún var í feikna stuði á laugardaginn og bauð mér í partý. Plús í kladdann fyrir það. Annars hefur Hulda einna helst unnið sér það til frægðar að vélritunardaðra við vélritunarkrúið sem sat sér á báti (í orðsins fyllstu) í skátapartýi í sumar. Vélritunarkrúið réð ekki við sig fyrir hlátri en Hulda hélt feisinu allan tímann þrátt fyrir mikil hlátursköst. Setningin: Ég tek 60 orð á mínútu... *blink blink* er alveg mögnuð. Hulda bað einmitt um að bloggað yrði um hana.
  • Ragnheiður. Vá... mikið af upplýsingum á stuttum tíma... ekki alveg viss hvort ég vildi vita allt þetta en alltaf gaman þegar Ragnheiður bullar full.
  • Svandís. Svandís hefur ekki enn komið sér upp kommentakerfi þannig að ég sit enn á upplýsingum um hvernig maður setur inn íslenska stafi í titil bloggs. Svandís er að fara í fræga ferð til Brussel á næstunni... var að spá í að senda hana með innkaupalista...
  • Héðinn. Var alveg á fullu á Ölstofunni... ekki alveg með á hreinu hvernig samskipti okkar voru. Bjórinn gerir undarlega hluti.
Já, svona var laugardagskvöldið. Eins og gefur að skilja fór sunnudagurinn því í KFC. Þunna manneskjan fékkst með á endanum eftir miklar barsmíðar og læti á bjöllunni. En vá hvað hún var þunn... ýkt fyndið... Svefn og málun fengu svo afganginn af deginum og Kewell var pakkað inn í dagblað (enginn gjafapappír til) og kortið heftað á (ekkert límband til). Snúðar bakaðir í morgun og morgunmatur settur á bakka í rúmið. Ég er best.

Sunna 15:33


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli