|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, nóvember 27, 2003 |
|
|
|
Bara einn eftir
Nú er bara einn tími eftir af þessari önn, ritþjálfun. Kennaranum fannst tilvalið að hafa próf í þessum síðasta tíma. Jeij! Mínus fyrir það í kennslukönnuninni. Er þegar búin að fella einn kennara í kennslukönnuninni, er að spá í að fella annan.
Þótt það sé bara einn tími eftir á ég samt eftir að skila 4 ritgerðum, taka 2 próf og halda fyrirlestur. Er þetta leyfilegt? Akkuru má maður ekki bara fá sitt upplestrarfrí??? Ég held að ástandið hafi aldrei verið svona slæmt í stjórnmálafræðinni. Ég sem ætlaði að gera eitthvað létt og skemmtilegt og taka þess vegna spænsku með stjórnmálafræðinni. Jæja, meirihlutinn er alla vega skemmtilegur.
Það er spurning hvort maður haldi upp á að þessi önn er að verða búin með því að fá sér bjór... Eða kannski læt ég mér bara nægja pepsi max. Nei, kannski verð ég bara sniðug og klára eina ritgerð (eða jafnvel tvær) og þá er sko alveg leyfilegt að kaupa sér jafnvel eina flík í verðlaun. Eða leggjast upp í rúm. Mmmm, rúmið heillar.
Ekki þar fyrir, ég hef eytt fáránlega miklum tíma uppi í rúmi síðustu daga. Leiðinda flensa ákvað að leggjast á mig í fyrradag þannig að ég lá í hálfgerðu kóma allan daginn. Mætti reyndar í skólann með það tvíþætta markmið að fá frest á ritgerð og að taka próf. Fresturinn fékkst nokkuð auðveldlega þar sem kennarinn sendi mig heim af því að ég leit svo illa út. Prófið var svo annað mál. Kennaraófétið ákvað að kenna fyrir prófið þannig að ég þurfti að sitja heillengi inni í stofunni. Ég hélt að dagar mínir væru taldir. Þegar ég fékk prófið loks í hendurnar flýtti ég mér að krassa í eyðurnar og skila því, bara til þess eins að komast út. Ég var næstum því búin að kasta upp yfir prófið. Síðar komst ég að því að ég hafði verið 50 sinnum fljótari en allir aðrir. Það verður örugglega fróðlegt að sjá útkomuna, ég veit nebbla ekkert hvað ég gerði. Ég vildi bara komast út.
Í dag ákvað ég að mæta í skólann líka þótt mörgæsahitamælirinn segði að ég væri með hita í morgun. Ég tala eins og einhver sé að kirkja mig, eflaust nokkuð fyndið. Kannski ég þegi bara. Eyðan milli tímanna átti að fara í að læra fyrir próf en kennarahelvítið (já, ég er nokkuð neikvæð út í kennarana mína þessa dagana, alla nema einn) hefur ekki sett glærurnar inn á netið þannig að það er víst ekki hægt að læra fyrir prófið. Fokk itt, ég fer þá bara ólærð.
Á þriðjudaginn lofa ég bót og betrun. Þá verður það mesta yfirstaðið vonandi og bara 2 ritgerðir og 3 jólapróf eftir. Þangað til verður Leiðinlega Sunna bara við, Skemmtilega Sunna er í fríi.
Sunna 11:54
|
|
|
|
|
|
|