|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
sunnudagur, nóvember 23, 2003 |
|
|
|
Beckham út um allt
Ég ætlaði að vera dugleg og rumpa af ritgerð um helgina en svo virðist sem það ætli ekki að ganga eftir. Ég er tossi. En þetta klárast þá bara á morgun. Ég hlakka til síðustu vikunnar í skólanum. Ég hlakka reyndar ekkert til að mæta í skólann þar sem mér finnst hann alveg hundleiðinlegur núorðið. Þjáist af skelfilegum skólaleiða í augnablikinu. Ég hlakka þess vegna mest til að klára þessa önn. Meira að segja prófin hljóma bara fín miðað við að mæta í tíma.
Eníveis. Í dag var haldið í BT. Markmiðið var að kaupa snúru til að geta tengt tölvuna við sjónvarpið og horft þannig á það skemmtiefni sem til er á diskum og í tölvunni. Ferðin gekk ágætlega. Snúran fannst og við keyptum okkar fyrsta X-box leik. Það var kúl. Nú eigum við David Beckham í stofunni hjá okkur. Hann er einkaþjálfarinn okkar og kemur okkur örugglega í form fyrir jólin. Eða um jólin. Alla vega er ég þess fullviss að ég fái mikla hreyfingu út úr því að spila þennan leik þar sem ég sökka gjörsamlega í honum og læt öllum illum látum og hamast á stýripinnanum þegar kallarnir gera ekki það sem ég vil að þeir geri. Ég þjáist af fylgja-með-hreyfingum-á-skjánum-syndromi. Það er mjög fyndið að fylgjast með mér spila kappakstursleiki. Fyrsta lagi er ég eins og verulega fullur einstaklingur, get engan veginn keyrt eftir beinni línu og í öðru lagi er ég alltaf staðin upp úr sætinu, hallndi hausnum og með tunguna út úr mér af æsing. Litli bróðir minn skammast sín fyrir mig.
En hvað um það, þetta var nú ekki það sem ég ætlaði að tala um. Í gær horfði ég á myndina Bend it like Beckham. Hún var fín en það er alveg nokkuð ljóst að ég á aldrei eftir að verða svona góð í fótbolta eins og stelpurnar í myndinni. Góð bresk mynd, mæli með henni.
Jæja, nú væri sniðugt að halda áfram með ritgerðina. Men hvað ég er leiðinleg núna.
Sunna 22:41
|
|
|
|
|
|
|