|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, nóvember 04, 2003 |
|
|
|
Í fótspor Bjarna Fel
Um daginn komst ég nú heldur betur í hann krappann. Ég fann hvergi plokkarann minn og augabrúnirnar á mér voru farnar að mynda frumskóg á stærð við Suðurlandsundirlendið. Mér leið eins og Bjarna Fel, sá ekki út úr augum og leit því óneitanlega út eins og górilla, afar illa til fara.
Þar sem ég er ekki duglegasta manneskja að ganga frá hlutum á réttan stað var mér gjörsamlega fyrirmunað að finna plokkarann. Eftir dauðaleit í nokkra daga kom að því að ég panikkaði og brunaði út í búð til að kaupa mér nýjan plokkara. Ég skoðaði úrvalið. Þarna var til venjulegur plokkari á 200 kall og svartur plokkari á 400 kall. Ég sá voða lítin mun á þessum tryllitækjum þannig að ég var hagsýn og tók þann ódýrari.
En þá rak ég augun í svaka pakka. Hægt var að kaupa plokkara, naglaþjöl, tvennar naglaklippur og pyntingaprik (sem ég veit ekki hvað gerir en er örugglega hægt að nota til að pota í einhvern) á 500 kall! Mín var ekki lengi að hugsa sig um og kippti þessum ofurpakka ofan í innkaupakörfuna.
Nú á ég sem sagt fullt af bjútí-tækjum til að grisja aðeins skóginn og gera mig fallegri en ég er (ef það er þá hægt...). Vandinn er bara að ég virðist aldrei geta fundið tíma til að nota þessar græjur þannig að augabrúnirnar eru alveg jafn úfnar og áður. Hvað á ég eiginlega að gera? Skrópa í skólanum?
Sunna 21:44
|
|
|
|
|
|
|