|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, nóvember 10, 2003 |
|
|
|
Á ég að kæra?
Kennarinn minn er fíbbl. Fyrir utan það að vera katalónskur (já, ég er rasisti, ég viðurkenni það alveg) er hann búinn að gera alla geðveika í kúrsinum sem hann kennir. Honum hefur tekist að setja 3 ritgerðir og hlutapróf inn í kúrs sem vegur 2,5 einingar.
Nú, það kannski er ekki nóg eitt og sér til að gera hann að fíbbli. Þetta gerir hann bara að óvinsælum kennara. En hann ákvað um daginn að setja einkunnirnar okkar inn á netið. Hann lét okkur vita af því að hann myndi gera það og ég skildi ekki hvernig hann nennti að senda hverjum og einum einkunnir á tölvutæku formi. Hann nennti því heldur ekki. Í staðinn skellti hann inn á skráasvæðið skjali með nöfnum allra og einkunnum allra.
Einkunnir hafa aldrei verið neitt feimnismál hjá mér, hvorki þær háu né þær lágu. En það er ekki svo hjá öllum. Ég veit um fullt af fólki sem vill bara hafa þær út af fyrir sig. Er það ekki þannig að einkunnir eru einkamál? Mig minnir að það hafi verið nokkur umræða um það í MR að maður ætti ekki að þurfa að láta foreldra sína kvitta í einkunnabækurnar því maður væri orðinn sjálfráða. Hvað á maður að gera þegar einkunnirnar manns eru birtar svona? Á maður að láta þetta eiga sig af því að þetta skiptir engu máli eða á maður að kæra þetta af því að þetta er óleyfilegt? ...þótt manni sé alveg sama að allir viti hvað maður fékk... Hvað er til ráða???
Sunna 14:45
|
|
|
|
|
|
|