|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, nóvember 24, 2003 |
|
|
|
Ógeðs-skóli Íslands
Ég þoli ekki skólann lengur! Nú eru aðeins 3 kennsludagar eftir (ég er aldrei í skólanum á föstudögum) og ég á samt eftir að skila 4 ritgerðum, fara í 3 próf og halda 1 fyrirlestur. Ástandið hefur aldrei áður verið þannig að ég hlakki til að fara í prófin en þannig er það núna. Í fyrsta skipti langar mig bara til að lesa og þurfa ekki að skrá hjá mér nákvæmlega hvar ég las hvað. Maður má ekki vita neitt nú orðið, alltaf þarf maður að vísa í heimildir. Maður er orðin svo gegnsýrður af ritgerðum að maður á sennilega eftir að setja footnotes á prófin.
Ég setti upp svaka plan í tíma í dag um hvernig ég gæti skipulagt mig sem best og klárað öll þessi verkefni. Hmmm, nú er bara að vona að ég geti staðið við planið. Það er ekki svo auðvelt. Hver einn og einasti dagur verður svo svakalega pakkaður að það verður ekki nokkur leið að gera neitt skemmtilegt. Ja, nema þá að maður fórni nóttunum í verkefnin. Það er svo sem allt eins líklegt. Þá verð ég eins og algjör tuska í vinnunni.
Mig langar bara að njóta þess í eitt skiptið að leika mér í desember, geta notið jólaundirbúningsins lengur. Í fyrra kláraði ég prófin 21. desember. Ég var að skrifa ritgerðir fram til mánaðamóta og prófin röðuðust hjá mér þannig að ég tók 4 próf á næstum því 4 vikum. Það var ÖMURLEGT! Ok, fínt að fá smá tíma fyrir próf en ömurlegt að hafa heila viku fyrir hvert! Þá gleymir maður sér bara í afslöppun. 22. desember nýtti ég svo í prófaþynnku þannig að þrif, jólagjafainnkaup, skreytingar og annað jólastúss lenti því allt á Þorláksmessu. GREAT!
Þetta var nottla ekki hægt og eitthvað varð að víkja. Móðir mín fengi sennilega flog ef hún hefði komist að því að ég þreif ekki fyrir jólin. Jólahreingerningin var gerð milli jóla og nýárs, áður en ég fékk gamla bekkinn minn heim í rejúníon-partý. Ég hafði bara ekki tíma til að taka til, auk þess var ég heima hjá mömmu og pabba mestallan tímann, nú eða þá í vinnunni.
Í ár verður aðeins meiri tími til stefnu. Vona ég alla vega. Ég klára prófin 19. des. en málið er að ég vinn miklu meira en í fyrra þannig að ég held að ástandið skáni lítið. Af hverju eru próf á Íslandi alltaf fyrir jólin? Þetta er mér alveg ráðgáta. Í flestum öðrum löndum eru þau eftir jól. Þegar ég var í Hagaskóla voru þau líka eftir jól, nógu seint en samt ekki of seint. Þá var sko hægt að njóta lífsins fyrir jólin.
Ohh, nú er ég orðin svo niðurdregin yfir tímaleysi fyrir jólin að mig langar helst að grenja. Eða baka piparkökur. Eða bara eitthvað jóla jóla...
Sunna 17:01
|
|
|
|
|
|
|