Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

þriðjudagur, nóvember 18, 2003


Góður matur

Ég hef sko ekki soltið síðustu dagana, síður en svo. Á laugardaginn var gúrmekvöld, sem ég var búin að hlakka til alveg geðveikt lengi. Það heppnaðist stórkostlega. Matseðillinn var þessi:

  • Forréttur: Grafinn lax á glóðuðu brauði með sérstakri graflaxsósu og fersku salati.
  • Aðalréttur: Grand Orange lambafille
    Nautapiparsteik úr innanlærisvöðva
    Kartöflugratín
    Sveppir
    Rauð paprika
    Tómatar
    Ferskt salat
    Coca Cola, hvítvín og sprite
    Nautakjötið, lambakjötið, sveppirnir, paprikan og tómatarnir voru steikt á steinasteikurgrilli
  • Eftirréttur: Mandarínu-ostakaka
  • Síðar: Snakk og gos.
Maturinn var alveg guðdómlegur og það er langt síðan ég borðaði svona á mig gat. Ætli rifið hafi ekki bara brotnað við þetta ofát... eða ekki. Ég og Hjördís undirbjuggum matinn en Óli og Anton sáu aðallega um að rétta hvor öðrum kartöflugratín. Hér má sjá myndir frá herlegheitunum.

Daginn eftir fengum við Óli afar góða lambasteik í Breiðholtinu og í gær átti Kári afmæli þannig að fjölskyldunni var boðið í mat. Litli bróðir minn vill helst ekki sjá neitt annað en pizzur og hamborgara en mamma og pabbi tóku það ekki í mál þar sem frænda mínum og frænku var boðið líka og þau gefa víst ekki mikið fyrir slíkt fóður. Kári sættist því á að hafa mexíkanskan mat á borðum. Í Granaskjólinu er mexíkanskur matur ekkert annað en hollur skyndibiti af því að það þarf svo lítið að hafa fyrir honum. Foreldrar mínir tóku hins vegar upp á að breyta út af venjunni í gær. Í staðinn fyrir að hafa bara nautahakk og grænmeti var alveg FULLT af dóti til að setja í burritos. NAMMINAMM!!! Pabbi steikti kjúklingabita upp úr einhverju sérstöku kryddi og það kom svona líka svakalega vel út. Svo setti hann baunir út í hrísgrjónin, það var baunamauk og endalaust mikið af grænmeti og sósum. Þetta var æði! Kári fær plús í kladdann fyrir að vera hrifinn af mexíkönskum mat og foreldrar mínir fá plús í kladdann fyrir frábærlega heppnaða útfærslu.

Mmmm... eftir svona mikið matarblogg er ég nú bara orðin svöng... mig langar í svínasteik með pöru, brúnuðum kartöflum og brúnni sósu...

Sunna 14:55


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli