|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
laugardagur, nóvember 22, 2003 |
|
|
|
Orðin geðveik?
Jæja, nú mega menn fara að hafa áhyggjur af andlegri heilsu minni... eða öllu heldur andlegri vanheilsu minni. Klukkan 11 í morgun var ég búin að gera margt og mikið, sem hlýtur að teljast ákaflega mannskemmandi. Hér er listinn:- Ég var vöknuð! - Það telst ákaflega óvenjulegt þegar ég á ekki að vera í vinnunni og það er laugardagur.
- Ég var búin að fara í sturtu! - Ok, það er nú kannski bara heilbrigt en það sem er óeðlilegt er að þegar ég á annað borð vakna á svona ókristilegum tíma þá nenni ég nú sjaldnast að fara fram úr. Í staðinn ligg ég bara og geri ekki neitt og læt tímann þannig fara til spillis.
- Ég var klædd! - Ok, kannski eðlilegt framhald af því að fara í sturtu, en alls ekki eðlilegt fyrir normal laugardag í lífi Sunnu.
- Ég var búin að hafa til skóladót! - Það að ég taki saman skóladót er álíka líklegt að gerist og að sjá 4 halastjörnur á sama deginum.
- Ég var komin á bókhlöðuna! - Hjálpi mér allir heilagir!!! Að mæta það snemma á bókhlöðuna á laugardegi að það er ekkert vandamál að fá sæti nálægt innstungu er nottla bara alveg hreint með ólíkindum.
En ég er sumsé mætt hér, búin að sjæna mig til, setja á mig maskara og greiða á mér hárið, jólalögin eru farin að hljóma í heyrnartólunum, dánlód á þráðlausa netinu er hafið og ég er að hugsa um að láta til skarar skríða og fara að leita mér að heimildum fyrir eina af 764 ritgerðum sem ég á að vera búin að skila.
Sunna 11:52
|
|
|
|
|
|
|