Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, nóvember 17, 2003


Sjúkdómsgreining

Undanfarið hef ég haft leiðinda verk í síðunni. Á föstudaginn gafst ég upp á honum og ákvað að láta lækni kíkja á mig á læknavaktinni. Ég lenti á ágætiskalli sem potaði í alla aumustu blettina og fannst skrýtið hvað verkurinn var víða. Hann ákvað að senda mig í sónar (neibbs, ekki ólétt) til að athuga hvort blætt hefði inn á einhver líffæri eða til að athuga hvort ég væri með gallsteina.

Hann sagði að ég ætti að fara beint á bráðamóttökuna ef ég versnaði en ef ég stæði í stað þá væri nóg að fara í sónar á Domus Medica. Það gerði ég svo í morgun. Var látin fækka fötum, klæða mig í slopp og sett inn á stofu með svona sónartæki. Læknirinn hét (og heitir væntanlega enn) Jörgen og hann talaði með mjög fyndnum hreim. Það var ekki gott því mig langaði alltaf að hlæja en það hefur verið frekar sárt upp á síðkastið.

Nú, nema hvað. Áður en hann kveikti á græjunum sá hann hvernig ég bar mig og sagði: "Nei, sko! Þú hlýtur að vera rifbeinsbrotin!" Hann skoðaði öll líffærin í sjónvarpinu (ýkt kúl að sjá þetta) og fann ekkert að. Hann var svo pottþéttur á að ég væri brotin að hann ákvað að skipta um stillingu á tækinu, setja á yfirborðsskoðun og finna brotið. Og viti menn, ég er rifbeinsbrotin. Honum fannst þetta svo kúl að hann bað mig um að vera módel fyrir 3 læknanema. Það að finna brot í sónar, sem ekki er hægt að greina á röntgenmynd, þykir nebbla vera helvíti kúl. Myndin var mjög skýr, brotið var skýrt og mjög stór svartur flekkur var fyrir neðan. Það var sko blóðið sem hafði farið inn á vöðvann. Þetta þótti mér ákaflega kúl.

Það er gott að vera komin með þetta á hreint. Ég fékk lyfseðil upp á fullt af dópi og á að fara vel með mig næstu vikurnar. Hlátur, hósti, hnerri, hiksti og allt svona er mjög sárt og Óli veit það ósköp vel. Honum hefur samt fundist svakalega fyndið að vera óeðlilega fyndinn bara til að kvelja mig. Merkilegt að sá sem segir lélega brandara að jafnaði skuli allt í einu taka upp á því að vera fyndinn. Það er ekkert fyndið!

Sunna 15:28


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli