Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

föstudagur, nóvember 14, 2003


Tilhugalífspælingar

Hjördís kíkti í heimsókn í gærkvöldi, eins og venja er á fimmtudögum. Tilefnið var að sjálfsögðu að fylgjast með milljónamæringnum Andrew Firestone og 25 stúlkum sem allar voru/eru head over heels.

Við pældum og pældum og þegar Óli kom heim úr fótbolta, kom hann með innlegg í pælingarnar. Það var nú soldið skondið að sjá 23 stelpur, sem öllum hafði verið dömpað af sama manninum, tala illa um hver aðra þegar þær ættu í raun að sameinast í bömmernum. Ég meina, ekki eins og þær hafi dömpað hver annarri. En köld eru kvennaráð.

Hópurinn skiptist í tvennt; the bitches og hinar sem voru ekki alveg jafntíkarlegar. Mér fannst Tina Fabulous bera af. Óli spurði hvort hún yrði ekki bara næsta bachelorette. Við veltum þessu fyrir okkur og fannst það bara ekkert ósennilegt. Net-nördinn ég fór náttúrulega beint á netið þegar ég kom í vinnuna og fann þetta:

There's already a rumor floating around that she's on ABC's list for "The Bachelorette," where one woman chooses from 25 men.
"I haven't had any talks with ABC about that just yet," she says. "If the opportunity presents itself, I would consider it."


Það er líka spurning hvort Gwen, þessi ofursæta úr síðustu seríu, sé kandídat í að vera bachelorette. Ég fann líka komment frá henni:

Gwen is happy to be back to her normal life, but hasn't ruled out a return to reality.
"I've been asked if I'd be open to being a Bachelorette. I don't know. I'm still thinking about it."


Þetta er allt voða spennó. Á þessu netsörfi mínu fann ég út að aðeins eitt par hangir saman, Ryan og Trista. Skil það svo sem ósköp vel, hver myndi vilja dömpa Ryan??? Amanda og Alex eru hætt saman og Aaron og Helene líka. Skyldi þó engan undra þar sem Helene var með eindæmum leiðinleg.

Eníveis, Það var gaman að sjá svona civil bitch fight í sjónvarpinu. Kirsten og Christina eru leiðinlegastar. Christina setti alltaf samasemmerki á milli þess að vera eldri og að vera þroskaður og tilbúinn fyrir hjónaband. Svo hagaði hún sér mest eins og afbrýðisamur krakki. Sumir eru barnalegir og óþroskaðir þrátt fyrir háan aldur, aðrir eru gamlir langt fyrir aldur fram. Maður þekkir nú dæmi um slíkt bara í eigin reynsluheimi.

Æ, nú er maður farinn að pæla of mikið í raunveruleikasjónvarpsþætti. Eins og þetta er nú mikið bull þá er ofsalega gaman að fylgjast með þessu. Á fimmtudaginn er svo lokaþátturinn og þá verða sko allir að fylgjast með og öskra ÁFRAM JEN!!!!

Sunna 11:00


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli