Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

föstudagur, nóvember 21, 2003


Verslingar væla

Í gærkvöldi fór ég á samkomu verslinga í Austurbæjarbíói. Ástæðan var söngkeppni nemenda. Ég átti nú svo sem ekki von á góðu þar sem keppnin heitir Verslóvælið. Hvað er málið með það? Af hverju væl?

Eníveis. Keppnin var ágæt. Reyndar fannst mér allt of mikið um keppendur sem héldu lagi og jafnvel sungu alveg ágætlega en völdu alveg skelfilega leiðinleg lög. Þrjár stelpur báru af og einn strákur. Strákurinn var með frumsamið rapp sem var alveg BRILLJANT, svo ekki sé meira sagt. "Ég er búinn að fá nóg af fréttum af íþróttaálfinum..." var ein línan hjá honum (eða nokkurn veginn svona). Ein stelpan söng eins og engill og var með alveg stórskemmtilegt cabaret-söngleikjalag með fyndinn titill. "I'm gonna wash that man right out of my hair" - æðislegt lag, stelpan söng alveg rosalega vel og náði góðri sveiflu í salinn. Hún lenti í þriðja sæti en ég hefði viljað sjá hana ofar.

Í öðru sæti var stelpa sem söng "What if God was one of us?" og gerði það mjög vel. Hún hefði reyndar mátt bæta sviðsframkomuna svolítið. Ég hugsa að ég hefði sett hana í 3. sætið. Í fyrsta sætinu var svo stelpa sem söng "Fields of Gold". Hún spilaði á píanó með og þetta var mjög flott hjá henni. Ég er samt ekki á því að hún hefði átt að vinna. Það var ýmislegt sem fór í taugarnar á mér við flutninginn, sérstaklega hvað hún fór illa með textann. Í staðinn fyrir að bera fram hvert eitt og einasta orð flýtti hún sér alltaf á ákveðnum stöðum þannig að það kom hökt í lagið. Sting gerði þetta betur. En samt mjög flott hjá henni.

Annars var það sem mér fannst merkilegast við þennan menntaskólafélagsatburð, að ég fékk smá nostalgíufíling. Ég saknaði menntaskólans. Skrýtið. Þegar ég var í MR vildi ég ekkert heitara en að klára þetta helvíti. Nú sér maður hvað þetta var verndað umhverfi og þægilegt líf.

Jæja, nú er þetta orðið alveg drepleiðinlegt blogg þannig ég held að ég ljúki þessu bara núna. Góðar stundir.

Sunna 09:54


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli