|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
mánudagur, desember 08, 2003 |
|
|
|
Allir þurfa góða granna
Jæja, nú eru sko heldur betur tíðindi af Hofsvallagötunni. Akkúrat þegar maður á að vera á kafi í próflestrinum þá dettur manni nottla í hug að gera ALLT ANNAÐ til að drepa tímann. Í ár varð eldhúsið fyrir valinu hjá mér. Já, eldhúsið mitt er loksins tilbúið. Í febrúar rifum við gömlu innréttinguna út og Hilli frændi smíðaði nýja. Hins vegar gafst aldrei tími til að setja hana upp þannig að eldhúsið var rústir einar og innréttingin var geymd inni í stofu þangað til í júní. Innréttingin sem Hilli smíðaði var reyndar bara neðri hlutinn. Í júní keyptum við svo efri skápa líka en engar hurðir. Pabbi skellti þessu upp og við létum gott heita í bili.
Þá var komið upp nýtt hálfklárað eldhús: ný borðplata, ný blöndunartæki, nýr vaskur, nýir skápar, nýjar skúffur og nýtt felliborð. Enn átti eftir að setja hurðir á skápana, höldur og flísar á vegginn. Flísarnar voru keyptar í byrjun nóvember af því að Byko bauð upp á flottar flísar á tilboði. Lím og fúa bættust í hópinn stuttu síðar og síðustu helgi gaf pabbi sér tíma í að skella þessu upp. Í gær var svo ákveðið að klára dæmið bara alveg. Skápshurðir voru keyptar og þær settar upp. Þá voru höldurnar skrúfaðar á og nú á ég glæsilegt eldhús með hvítri smekklegri og látlausri innréttingu, ljósgrárri borðplötu, silfurgráum möttum höldum og bláum mósaík-flísum á veggnum. Men ó men hvað þetta er flott. Myndir væntanlegar innan skamms.
Eníveis, þegar við vorum í miðjum klíðum í gær við að setja upp skápshurðir, var bankað. Jóhanna, nágranni minn á neðri hæðinni, stóð fyrir utan með disk fullan af nýbökuðum smákökum, rétti mér hann og sagði "Æ, ég er að reyna að koma mér í jólaskap". Svo var hún rokin. Þetta var alveg ótrúlega sætt af henni og alveg frábærar smákökur. Já, það er gott að eiga góða granna að.
Jæja, þá held ég að það sé mál að byrja að vinna. Þarf alla vega að gera eitthvað áður en Bold and the beautiful byrjar til þess að ég lúkki vel og allir haldi að ég sé svaka bissí. Ég hef reyndar alveg nóg að gera, nenni bara ekki að gera það. Hmmm, ég er kannski ekki að auglýsa mig nógu vel núna. Over and out.
Sunna 08:43
|
|
|
|
|
|
|