|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, desember 02, 2003 |
|
|
|
Bögg og léttir
Ég brilleraði aldeilis í munnlega prófinu áðan. Sjaldan hef ég talað spænsku jafn hratt, reiprennandi og alveg málfræðilega rétt. Umræðuefnið var tengsl fjölskyldu minnar við hinn suðræna spænskumælandi heim. Tvö lítil börn sem tala íslensku að jafnaði en blóta og bölva á spænsku vakti mikla kátínu. Ok, kannski örlítið fært í stílinn, Stella blótar á þýsku og Símon er ekki enn kominn með það mikið vald á hinu talaða máli. En engu að síður fínt umræðuefni á munnlegu prófi.
Annars er ég alveg að fríka út á bloggernum. Ég hef ekki hugmynd um hvort mér tekst að koma þessari færslu á leiðarenda og allar bloggsíður hafa meira og minna legið niðri í dag [lesist: ég hef þurft eyða tímanum í að vinna allt of mikið í dag]. Sem betur fer er vinnudagurinn nánast búinn þannig að ég geft farið að drepa tímann einhvern veginn öðruvísi.
Já, nú eru nýir tímar. Skólinn er búinn og öll munnleg próf eru líka búin. Nú á ég bara eftir að skila tveimur ritgerðum og fara í 3 próf og þarf ekki að mæta í neina tíma. Þess vegna get ég unnið stuttan vinnudag án þess að vinna minna en áður. Áður þurfti ég alltaf að fara í skólann í 2 tíma þannig að ég varð að vera þeim mun lengur í vinnunni. En það er liðin tíð sem betur fer! 9-3 vinna, here I come!
Sunna 14:55
|
|
|
|
|
|
|