|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
föstudagur, desember 05, 2003 |
|
|
|
Brotið á mannréttindum mínum
Síðasta vor, þegar ég var að skrá mig í kúrsa fyrir þessa önn, skráði ég mig í námskeið sem heitir Mannréttindi frá ólíkum sjónarhornum. Ég skráði mig reyndar úr þessu þegar ég ákvað að gerast spænskunemi en ég sé að ég hefði örugglega haft margt til málanna að legga ef ég hefði farið í þennan kúrs.
Fyrst þar er rætt um mannréttindi frá ólíkum sjónarhornum er vert að benda á sjónarhorn mitt. Út frá mínu sjónarhorni er það algjört mannréttindabrot að láta mig vakna fyrir hádegi. Ég var mætt í vinnuna fyrir klukkan 8 í morgun!!! Nú sit ég við tölvuna, hef rétt svo orku í að hreyfa puttana á lyklaborðinu og augun lokast hvað eftir annað. Ég lít út eins og borðtuska (er samt ekki illa lyktandi eins og borðtuskur eiga það til að vera), sum sé, afar sorgleg.
Maður hlýtur nú að velta fyrir sér endrum og eins af hverju maður þarf að mæta svona snemma í vinnuna. Ég meina, hver er ávinningurinn??? Ég væri mun pródúktívari ef ég þyrfti ekki að mæta fyrr en klukkan 11. Nú er ég hins vegar svo mygluð að ég get ekki gert neitt nema geispað og hugsað hvað ég eigi að gera í hádeginu. Einhverjar uppástungur? Sem betur fer er ég búin klukkan 2 í dag og þá get ég farið og fengið mér lúr... ég verð nebbla að vera í gír í kvöld. Merkisatburður í kvöld, ég fer að sjá Love Actually!
Sunna 08:33
|
|
|
|
|
|
|