Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

fimmtudagur, desember 04, 2003


Enginn vafi

Ég gerði nokkuð í dag sem telst heldur betur til tíðinda í lífi Sunnu litlu. Ég brá mér í Skífuna og keypti mér geisladisk. Annars skipti ég aldrei við það fyrirtæki. Ekki svo að skilja að ég hafi horn í síðu þess, nei nei, ég kaupi mér bara aldrei geisladiska á Íslandi. Ja, nema þá tollfrjálsa í fríhöfninni. Sum sé, blað brotið í innkaupasögu Sunnu.

Venjulega læt ég mér nægja að ná í tónlist á netinu eða fá diska lánaða og kópíera þá. Já, ég viðurkenni glæp minn. Síðast keypti ég best of diskinn með Gunna Þórðar í Skífunni en það var nú bara af því að mig langaði til að eignast Gaggó Vest og ég fann það hvergi á netinu. Þá hafði ég ekki keypt neitt þar síðan einhvern tíma í upphafi 10. áratugar síðustu aldar. Mig minnir að ég hafi keypt geisladisk handa bróður mínum í jólagjöf eitt sinn.

Eníveis, það var ekki ætlunin að útlista öll mín samskipti við Skífuna, það annars ágæta fyrirtæki. Diskurinn sem hlaut þann heiður að vera keyptur af mér en ekki stolinn af netinu var með hljómsveitinni "Enginn vafi" eða No Doubt, eins og það útleggst á útlenskunni. Á því leikur enginn vafi að Enginn vafi er stórgóð hljómsveit með stórgóð lög. Óla finnst heldur ekki skemma fyrir að Gwen er ofurtöffari. Mér finnst það reyndar líka.

Já, það er enginn vafi á því að ég mæli með Engum vafa og singúlunum þeirra frá árunum 1992-2003. Nú hljómar einmitt lagið Don't speak, sem tröllreið heiminum svona um '95-'96. Gamlar minningar úr miðasöluboxinu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum vakna... já þar sat ég löngum stundum hérna í denn, hlustaði á útvarpið og hleypti landanum inn í garðinn.

Enginn vafi að Enginn vafi stendur fyrir sínu. Vá, hvað ég er fyndin í orðaleikjunum núna... ha ha!

Sunna 21:41


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli