Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

mánudagur, desember 01, 2003


Fór á kostum!

Jæja, þá er fyrirlesturinn búinn. Ég fór algjörlega á kostum, það kjaftaði á mér hver tuska og mér datt alltaf endalaust meira í hug að segja frá súrsuðum hrútspungum, sviðum, hákarli og brennivíni. Til að slá örlítið um mig mætti ég með myndir frá þorrablóti Íslendingafélagsins í Barcelona. Þar hitti ég sko heldur betur í mark. 20 mínútna fyrirlestur varð að næstum því 40 mínútum. Kúl. Eitt lítið munnlegt próf eftir og þá á ég bara eftir 2 ritgerðir og 3 lokapróf.

Annars er ég nú bara komin í jólastuð og nenni ekkert að pæla í skólanum. Það er nú svo sem engin nýlunda, ég nenni aldrei að pæla í skólanum. Aðventukransinn er kominn á borðið, aðventuljós út í glugga, jólaskraut bíður í kössum og jóladagatalskertið sem ég föndraði í gær verður tendrað í kvöld.

Andrúmsloftið í vinnunni er voða létt í dag. Rás 2 á ammæli og þá fær maður köku. Það er vel. Hins vegar gerir andrúmsloftið það að verkum að ég nenni ekki að koma neinu í verk. Svo er líka fullt af fólki búið að hanga í græjunum mínum í allan dag þannig að ég hef ekki getað komið neinu í verk. Er að spuglera að beila bara á þessu, fara niður, fylgjast með útsendingu beint frá Markúsartorgi og fá mér vínarbrauð og svala. Kannski maður jafnvel gerist svo grand á því að maður splæsi í eina pepsi max. Visa-reikningurinn var svo skuggalega lágur síðast að ég var ekki viss um að ég ætti hann. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að þar voru engar færslur úr mötuneyti RÚV. Alveg óskiljanlegt hvernig mér hefur alltaf tekist að eyða hálfum fjárlögum íslenska ríkisins þar, einkum í ljósi þess að allt sem selt er í mötuneytinu er gjörsamlega óætt. Ja, eða næstum því allt. En those days are over, my friend. Nú er Sunna litla hætt að spandera í gos og óæti í mötuneyti Helvítis. Það má samt gera undantekningu í dag, ég meina, það er nú einu sinni ammæli.

Sunna 15:14


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli