|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, desember 09, 2003 |
|
|
|
Fyndið atvik
Ég fór í sturtu áðan. Ekki í frásögur færandi svo sem. Stuttu síðar hringdi mamma til að spyrja hvort við kæmum í mat. Ok, aftur ekkert sem er í frásögur færandi. Rétt eftir það lagðist ég með blaut hár og allsnakin upp í rúm, aðeins að hvíla mig frá próflestrinum. Já já, ég er alveg að koma að þessu fyndna.
Ég fékk sms. Það eitt og sér telst kannski ekki til tíðinda. Ég hélt að þarna væri mamma að láta mig vita hvað hún hefði valið í matinn. Mamma er einstaklega lúnkin við að nýta sér tæknina til fánýtra hluta. (Dæmi: Sms sent frá mömmu: Ég er á kaffihúsi að drekka heitt kakó. Sms sent frá mömmu daginn eftir: Ég er á sama kaffihúsi og í gær að drekka heitt kakó) Eníveis, fyndni parturinn var hvernig ég brást við þessu tiltekna sms-i. Ja, eða kannski frekar hvernig Óli brást við.
Sms-ið var sum sé ekki frá mömmu. Sendandinn fær nafnleynd. Ég rauk upp úr rúminu, náði mér í slopp, stökk fram á gang og skellti mér í íþróttaskó. Stuttu síðar kom ég inn talandi í símann, settist við tölvuna, hegðaði mér undarlega (að mati Óla, ósköp eðlilega að mínu mati) og lauk símtalinu.
Óli hélt að ég ætti viðhald. Hann spurði grafalvarlegur hvort það væri allt í lagi, hvort ég væri í fýlu, hvort ég væri hrædd, hvort ég væri reið og þar fram eftir götunum. Ég vildi ekkert gefa upp. Mér fannst forvitnin svo fyndin að ég var ennþá fastari á því að gefa ekkert upp.
Æ, eftir á að hyggja var þetta kannski ekkert fyndið. Kannski var þetta bara svona jú-had-tú-bí-ðer-fyndið. Kannski ekki. Kannski var þetta bara svona jú-had-tú-bí-Sunna-fyndið. Nú er ég að velta því fyrir mér hvort ég eigi yfirhöfuð ekkert að birta þessa færslu vegna óhemjumikils skorts á fyndni. Ef þú ert enn að lesa hef ég greinilega birt færsluna. Ef ekki, þá hef ég sennilega ekki birt hana. Nú, eða þá að þú hefur bara alls ekkert farið inn á síðuna. Heimspekileg pæling.
Sunna 22:32
|
|
|
|
|
|
|