|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
fimmtudagur, desember 11, 2003 |
|
|
|
Ég ER 18 ára!
Ég fékk það endanlega staðfest áðan að ég ER 18 ára! Ég skrapp niður í Versló (með s-i, z hefur verið afnumin úr íslenskri stafsetningu) áðan til að láta Óla fá fjarstýringuna á bílnum. Já, við keyrum um á fjarstýrðum bíl. Ég hafði nebbla verið með bíllyklana í vasanum og gleymdi að láta hann fá fjarstýringuna í morgun þegar hann skutlaði mér í vinnuna.
Eníveis, ég rölti upp á skrifstofuna og bað um að fá að tala við Óla. Vissi að hann var í jólahlaðborðsmat inni á kennarastofu. Skrifstofudaman sagði við mig: "Já, nú eru bara allir kennararnir í mat og það má ekki trufla þá". Ég var nú ekki alveg á því að gefast upp svo auðveldlega þannig að ég flýtti mér að bæta við áður en skrifstofublókin rauk í burtu: "Ég þarf bara að láta hann fá bíllyklana sína..." (Nennti samt eiginlega ekki að fara að útskýra að þetta væri bara fjarstýring, ekki lyklarnir sjálfir, það hefði bara verið útúrdúr). Blókin snarstoppaði og spurði hissa: "Ertu kærastan hans?" Ég játti því og þá varð hún enn meira hissa og sagði: "Ó, ég hélt að þú værir nemandi...".
Nú er þrennt í stöðunni:
1) Ég er svona óhemju ungleg og glæsileg að ég lít út fyrir að vera nemandi í Versló (þótt ég sé ekki með aflitað hár og nýkomin úr ljósabekknum).
2) Skrifstofublókin hefur svona litla trú á Óla í stelpumálum að hún heldur að hann geti aldrei náð í svona flotta (og unga) stelpu eins og mig...
3) Skrifstofublókin gerir ráð fyrir að aðeins ungar nemendastelpur leiti Óla uppi.
Augljóslega er skýring 1) sú eina rétta.
Sunna 13:38
|
|
|
|
|
|
|