Hmmm...
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"


Gamalt blogg


Heim



    Dót  
   
Gestabók
Myndir
Drykkjuleikjahandbókin
Pottþétt Gelgja
 


    Vinir og kunningjar  
    Óli
Anton
Strumpurinn
Hjördís
Ísi
Anna
Jóhanna
Svandís
Lovísa
Arnbjörg
Þórhildur
Sigurrós
Selma
Þorbjörg
C-bekkurinn
Héðinn
Ragnheiður
Freyja
Íris beib
Halldór Valur
Kalli
Eva - Blogg
Silja
Eva
Lára
Erna
Jónas
Guðbjörg Lilja
 


    Linkar  
    Heimasíðan mín
Vefpóstur HÍ
Netorðabókin
Netþýðandinn
Háskólinn
Politica
Sms - Síminn
Sms - OgVodafone
Nagportal.net
RÚV
Mogginn
Eurovision.is
Batman
Tilveran

Sendu mér póst!




tracker






Weblog Commenting by HaloScan.com
 

This page is powered by Blogger. Why isn't yours?

þriðjudagur, desember 16, 2003


Ég tóri enn...

...en bara rétt tæplega. Málfræðipróf á morgun og ég á enn eftir 5 kafla. Bókmenntapróf á föstudaginn og ég á enn eftir að átta mig á því af hverju ég skráði mig í þann kúrs. Það eina jákvæða við hann er að kennarinn er kammó. Ok, nú færi ég kannski örlítið í stílinn. En það að hafa próf 19. desember er alveg næg ástæða til að skrá sig úr honum. Stúpid mí.

Flensan - part II er á fullu. Ég fer bráðum að geta myndað svona trilogy eins og Lord of the rings. Flensan og LOTR eiga það nebbla sameiginlegt að fá mig til að óska þess heitast að ég sé í rúminu mínu. Maður er ekki fyrr búin með eina flensu fyrr en sú næsta tekur við. Ég get svarið það, ég held að ég sé með fleiri vírusa en tölvan mín!

Annars kom Snorri í heimsókn áðan. Það var nú nokkuð kúl því hann læknaði tölvuna mína. Hún var eitthvað pirruð út af forriti sem ég dánlódaði um daginn. Forritið var nebbla að vinna á fullu allan daginn við að láta fólk úti í heimi fá gögnin mín. Það hægði aðeins á henni. Auk þess hafði þetta forrit gert sig heimakomið og boðið öðrum forritum í partýið. Ekki vel séð. En nú er sum sé búið að reka boðflennur í burtu og tölvan getur aftur hugsað jafnhratt og ég. Eða svona næstum því.

En ekki dugar að slóra, viðtengingarhátturinn tengist ekki sjálfkrafa við heilabúið. Jesús góður hvað þetta var lélegur brandari. Note to self: Ekki reyna að vera fyndin með stíbblað nef og málfræðibók á borðinu. Það brýtur gegn mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Sunna 23:21


Comments:
<$BlogCommentBody$>
<$BlogCommentDeleteIcon$>
Skrifa ummæli