|
|
Hmmm... |
|
|
|
"Judge all you want, but married a lesbian, left a man at the altar, fell in love with a gay ice dancer, threw a girl's wooden leg in the fire, livin' in a box!!!"
|
|
|
|
|
|

|
|
|
þriðjudagur, desember 30, 2003 |
|
|
|
Gott fordæmi
Ég verð alltaf soldið svekkt þegar ég fer minn daglega netrúnt að morgni hvers vinnudags og kemst að því, mér til mikillar mæðu, að fólk er ekki búið að blogga neitt nýtt. Ég hef því ekkert að skoða á netinu og hef enga hugmynd hvað ég á af mér að gera. Ekki get ég farið að vinna því klukkan er ekki orðin 11. Sunníska lögmálið er nebbla að vinnuandi minn vaknar ekki fyrr en klukkan 11.
En í morgun áttaði ég mig á því að ég er ekkert betri en þið hin (takið til ykkar sem eigið). Ég hef ekki skrifað neitt af viti í viku. Ok, maður gæti svo sem alveg afsakað sig fyrir að hafa ekki setið mikið við tölvu þar sem nú eru jól og svona. En þannig er það nú samt ekki. Ég hef unnið fullt um jólin (aðfangadag, 27. des., 29. des. og í dag) og því setið alveg heilan helling við tölvu. Ég hef því enga afsökun og skammast mín ofan í tær. En nú skal bætt úr þessu, hér er blogg, njótið þess að lesa eitthvað nýtt og endilega farið að fordæmi mínu. Ég þarf virkilega á því að halda að lesa eitthvað skemmtilegt.
Annars er ekkert svakalega mikið í fréttum. Jólin voru góð, ég fékk fullt af dóti í eldhúsið, t.d. tvö svakaleg rafmagns-tryllitæki. Ég er mikið fyrir rafmagnsknúin eldhústæki og hlakka því alveg svakalega til að læra að elda svo ég geti nú notað þetta. Ef þið vitið um eitthvað sniðugt sem hægt er að gera í matvinnsluvél og töfrasprota megið þið endilega láta mig vita. Eitt það skemmtilegasta sem gerðist á jólunum var þó að sjá viðbrögðin hjá Óla þegar hann fékk gjöfina mína. Sjáum til hvort hann er tilbúinn til að tjá sig eitthvað um það...
Í gær gerðist soldið fyndið í vinnunni. Ég var að leysa af inni í textavarpi á kvöldvakt og um níuleytið byrjuðu brunabjöllur að klingja. Það er alveg á hreinu að einhvern tíma á maður eftir að brenna inni. Venjulega lítur fólk upp þegar brunabjöllurnar fara í gang og veltir því fyrir sér hvort það eigi að fara út eða gera eitthvað skynsamlegt. En í gær nennti enginn að lyfta svo mikið sem annarri rasskinninni af stólnum. Fólk hélt bara áfram að leika sér í tölvuleikjum eða gera eitthvað ómerkilegt og enginn pældi neitt í hugsanlegum bruna í húsinu. Fólk kippti sér ekki einu sinni upp við skerandi hávaðann frá bjölluófétinu. Ætli þetta sé ekki merki um að gamlárskvöld er að nálgast... smá brunalykt og brjálaður hávaði þykir þá fullkomlega eðlilegur.
En já, þetta er sum sé næst síðasti dagur ársins. Á morgun eru tvö partý, mig langar í bæði en veit ekki hvort það tekst. Hvað sem gerist þá verður örugglega alveg brjálað stuð. Galdurinn við að gera gamlárskvöld að frábæru djammkvöldi er að fara í gott partý með góðu fólki og vera þar fram undir morgun... Gleðilegt ár!
Sunna 10:26
|
|
|
|
|
|
|